Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið
Fjölskyldusvið

Fjölbreytt sumarstörf á Djúpavogi fyrir 18 ára og eldri

Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jákvæðum einstaklingum 18 ára og eldri til að starfa við fjölbreytt sumarstörf með börnum og ungmennum sumarið 2025. Að þessu sinni er auglýst eftir starfsfólki á Djúpavogi.

Fjölbreytt sumarstörf gefa einstaklingum sveigjanleika og þann kost að kynnast ólíkum sumarstörfum Múlaþings án þess að þurfa að skuldbinda sig við eitt ákveðið verkefni.

Meðal verkefna eru starf flokkstjóra og sumarfrístund.

Um er að ræða tímavinnu á virkum dögum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Íslensku- og enskukunnátta
  • Ökuréttindi eru æskileg
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Hreint sakavottorð
  • 18 ára og eldri
Auglýsing birt27. mars 2025
Umsóknarfrestur11. apríl 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Djúpivogur
Starfstegund
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar