Smith & Norland
Smith & Norland

Fjármálastjóri

Smith & Norland óskar eftir að ráða drífandi fjármálastjóra til starfa. Fjármálastjóri ber ábyrgð á daglegri fjármálastjórn, greiningu og gerð stjórnendaupplýsinga ásamt öðrum verkefnum. Í boði er fjölbreytt og krefjandi starf hjá öflugu innflutnings- og sölufyrirtæki í Reykjavík.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og innflutnings, þ.m.t. gerð framlegðarútreikninga, uppgjöra og áætlanagerð
  • Yfirumsjón með bókhaldi og tolla- og innflutningsdeild
  • Skrifstofustjórn
  • Umsjón með innheimtu og samþykkt reikninga, bæði innlendra og erlendra
  • Eftirlit, greiningar, gerð rekstraryfirlita og stjórnendaupplýsinga
  • Þátttaka í stefnumótun og umsjón með þróun og innleiðingu verklags með ábyrgri fjármálastjórn
  • Önnur tilfallandi verkefni.

Menntun og hæfniskröfur:

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskipta eða skyldra greina
  • Farsæl og árangursrík reynsla af fjármálastjórn og áætlanagerð
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar og geta til að byggja upp sterka liðsheild
  • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu fjármálaupplýsinga
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni
  • Framsýni, sjálfstæði og frumkvæði
  • Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti


Um fyrirtækið:
Smith & Norland er rótgróið fjölskyldufyrirtæki sem flytur inn og selur rafbúnað af margvíslegum toga, allt frá vöfflujárni til virkjunar. Fyrirtækið er meðal annars fulltrúi þýska stórfyrirtækisins Siemens á Íslandi. Hjá Smith & Norland starfa nú rúmlega 40 manns. Mikil fagþekking er innan fyrirtækisins enda er kjörorð þess: Sala með þekkingu. Smith & Norland er til húsa í eigin húsnæði í Nóatúni 4 í Reykjavík.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veitir Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) í síma 511 1225.

Auglýsing birt26. febrúar 2025
Umsóknarfrestur17. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nóatún 4, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar