Kópavogsbær
Kópavogsbær
Kópavogsbær

Áhættu- og fjárstýringastjóri Kópavogsbæjar

Viltu stýra áhættu- og fjárstýringu í einu stærsta sveitarfélagi landsins?

Kópavogsbær leitar að drífandi og reynslumiklum áhættu- og fjárstýringarstjóra sem er tilbúinn að leiða fjármála- og áhættustýringarstarf sveitarfélagsins með skýrri sýn og sterkri leiðtogahæfni.

Í þessu lykilstarfi færðu tækifæri til að móta og þróa fjármálastefnu og stuðla að skynsamlegri og árangursríkri nýtingu fjármuna sveitarfélagsins. Áhættu- og fjárstýringarstjóri starfar í nánu samstarfi við bæjarstjóra og stjórnendur bæjarins og er lykilaðili í stjórnendateymi sveitarfélagsins.

Skrifstofan fer fyrir stefnumótun og framkvæmd fjármála- og áhættustýringar sveitarfélagsins. Undir skrifstofu fjármála- og áhættustýringar heyrir m.a. áhættu- og fjárstýring, vinna við gerð fjárhagsáætlunar, árshluta- og ársreiknings, ýmiss konar rekstrargreiningar þvert á svið og skrifstofur, innheimta og bókhald. Skrifstofan ber ábyrgð á greiningum vegna ýmiskonar stefnumörkunar, áætlanagerðar og rekstrar, eftirliti og eftirfylgni með framkvæmd fjárhagsáætlunar og öðrum fjárhagslegum áætlunum. Hlutverk skrifstofunnar er einnig að vera leiðandi í þróun og samhæfingu stjórnendaupplýsinga í samvinnu við framkvæmdastjórn sveitarfélagsins og ráðgjöf þar að lútandi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Dagleg stjórnun skrifstofunnar og málaflokka sem undir hana heyra
  • Fjármálaþjónusta, fjármála- og rekstrarráðgjöf og ýmiskonar greiningar vegna stefnumörkunar, áætlanagerðar og rekstrar fyrir svið, skrifstofur og starfsstöðvar Kópavogsbæjar
  • Leiðir og ber ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar, fjárhagsuppgjörs og ársreikninga þvert á sveitarfélagið
  • Ábyrgð á eftirliti og eftirfylgni með fjárhagsáætlun og öðrum fjárhagslegum áætlunum
  • Ábyrgð á skulda- og lausafjárstýringu sveitarfélagsins
  • Ráðgjöf og stuðningur við gerð launaáætlunar í samvinnu við skrifstofu mannauðs- og kjaramála
  • Leiðir framkvæmd og mótar verkferla hvað varðar rekstrar- og frávikagreiningar
  • Þróar og innleiðir umgjörð um heildstæða og samræmda áhættu- og fjárstýringu og innra eftirlit
  • Framkvæmd samræmdrar og heilstæðrar áhættustýringar og þróun ferla á grundvelli áhættustefnu sveitarfélagsins, þvert á svið og skrifstofur Kópavogsbæjar
  • Yfirsýn og eftirfylgni umbótaverkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi og framahaldsmenntun á háskólastigi
  • Farsæl reynsla af stjórnun rekstrar og mannauðs og sterk leiðtogahæfni
  • Mjög góð greiningarhæfni og færni í framsetningu gagna
  • Yfirgripsmikil þekking á íslenskum fjármálamarkaði og skuldastýringu
  • Reynsla af stýringu fjármagns, einkum með tillit til lausafjárstýringar
  • Yfirgripsmikil þekking á þróun efnahagsstærða og skilningur á áhrifum þeirra á skuldir og rekstur sveitarfélaga
  • Víðtæk reynsla af gerð og greiningu ársreikninga
  • Reynsla af þátttöku í skuldabréfaútgáfu, þar með talið gerð útgáfulýsinga og greiningu á vaxta- og verðbólguáhættu skuldabréfa
  • Viðamikil reynsla af áhættustýringu
  • Gott vald á upplýsingatækni og notkun hennar við úrvinnslu og meðhöndlun gagna
  • Frumkvæði, sjálfstæði og lausnamiðuð nálgun
  • Mjög góð samskiptahæfni og hæfileikar til að byggja upp traust og árangursríkt samstarf
  • Hæfni til að byggja upp og leiða teymi sem starfar þvert á svið
  • Góð færni í að tjá sig í ræðu og riti, bæði á íslensku og ensku
  • Þekkingu á innri endurskoðun, opinberri stjórnsýslu og skilningi á opinberum rekstri er kostur
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins

Auglýsing birt28. febrúar 2025
Umsóknarfrestur14. mars 2025
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar