

Fincafresh leitar af starfsmanni
Fincafresh í starfsmannaleit!
50% eða 100% starf
Fincafresh er ört vaxandi sprotafyrirtæki. Við erum, að okkur vitandi, eina fyrirtækið á Íslandi sem sér sjálft um að velja ávexti, pakka og flytja vöruna frá bónda til viðskiptavina. Við erum nýbyrjuð með netverslun með allskonar mögnuðum vörum og erum sérstaklega góð í að finna heimagerðar og lífrænar vörur frá minni framleiðendum.
Starfið felur í sér:
Setja saman ávaxtakassa
Þrífa og halda rýminu snyrtilegu
Sinna afgreiðslu og þjónustu í verslun
Taka þátt í því að gera búðina hlýlega og fallega
Einföld tölvuvinna og utanumhald
allskonar
Við leitum að einstaklingi sem:
Hefur bílpróf Er ábyrg/ur, samviskusöm/samur og sveigjanleg/ur Nennir að taka til hendinni og er ekki hrædd/ur við fjölbreytt verkefni
Þú munt læra allt um ávexti og þú munt læra helling í spænsku!
Mjög fjölbreytt starf. Allt frá tölvuvinnu, þrif, pakka ávöxtum, gæðaeftirlit, afgreiðsla í verslun, halda utan um lager.
Bílpróf












