

Hjúkrunarforstjóri
Hjúkrunarheimilið Fellsendi vill ráða hjúkrunarforstjóra til eins árs frá og með ágúst 2022. Heimilið er staðsett í fallegri sveit Miðdala, um 20 km fyrir sunnan Búðardal. Á Fellsenda er rekið hjúkrunarheimili fyrir 27 íbúa sem glíma við geðsjúkdóma/geðfatlanir af ýmsum toga. Á Fellsenda ríkir góður starfsandi og heimilisbragur enda er starfið þar framsækið og metnaðarfullt.
Allar nánari upplýsingar veita Helga Garðarsdóttir, hjúkrunarforstjóri í síma 694 2386 eða [email protected] og Þórður Ingólfsson, formaður framkvæmdastjórnar í síma 893 1125 eða [email protected]
Umsóknir og ferilsskrár skulu sendar til framkvæmdastjórnar á netfangið [email protected] í síðasta lagi 15. maí 2022.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða umsókn sem er eða hafna öllum.
Framkvæmdastjórn Hjúkrunarheimilisins Fellsenda











