

Félagsráðgjafi - Heilsugæslan Árbæ
Hefur þú áhuga á fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun ?
Heilsugæslan Árbæ leitar að félagsráðgjafa í nýtt og spennandi starf. Um er að ræða 50 - 100% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir nánara samkomulagi.
Á heilsugæslustöðinni starfa sérhæft og metnaðarfullt starfsfólk í hvetjandi og áhugaverðu starfsumhverfi þar sem frumkvæði og sjálfstæði fær að njóta sín. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Hjá okkur ríkir góður starfsandi og áhersla er lögð á náið samstarf fagstétta og teymisvinnu.
Heilsugæslan Árbæ býður upp á fjölskylduvænt vinnufyrirkomulag og gott starfsumhverfi.
Frekari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (https://island.is/s/hh).
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Teymisvinna með læknum, hjúkrunarfræðingum, ljósmæðrum, riturum og sálfræðingum
- Einstaklingsbundin stuðningsviðtöl og ráðgjöf sem lítur að sálfélagslegum vanda ásamt framfærsluúrræðum, félagslegum úrræðum og réttindamálum
- Fjölskylduráðgjöf af ýmsum toga
- Samstarf við aðrar stofnanir og þjónustuveitendur s.s. heilbrigðisstofnanir, þjónustumiðstöðvar, starfsendurhæfingu, TR, SÍ o.fl.
- Leyfi frá embætti landlæknis til að starfa sem félagsráðgjafi, skilyrði
- Víðtæk starfsreynsla og/eða reynsla af sambærilegu starfi, skilyrði
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu félagsþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi fyrir þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
Íslenska
Enska





