

Yfirlæknir á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, auglýsir eftir yfirlækni á Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu.
Þróunarmiðstöð Íslenskrar heilsugæslu (ÞÍH) leiðir faglega þróun innan heilsugæslu á landsvísu. Markmið ÞÍH er að styðja við alla starfsemi heilsugæslunnar í landinu varðandi gæðamál, verklag, kennslu og vísindavinnu. ÞÍH vinnur að samræmingu verklags og samhæfingar milli fagfólks á heilsugæslustöðvum, gæðaþróun, framförum i heilsugæslu og vísindastarfi í samráði við aðila sem reka heilsugæslustöðvar.
Um er að ræða 50% ótímabundið starf og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. september eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar um starfsemi ÞÍH má finna á Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu | Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
-
Leiða verkefni sem snúa að gæðaþróun í heimilislækningum og heilsugæslu á landsvísu og taka þátt í slíkum verkefnum í samstarfi við aðra fagaðila á ÞÍH
-
Samstarf og samvinna við aðrar stofnanir og stjórnvöld
-
Gerð leiðbeininga og gæðaskjala fyrir starfsfólk heilsugæslunnar
-
Þáttaka í sjálfbærniverkefnum á vegum ÞÍH
-
Önnur verkefni sem yfirlækni eru falin af forstöðumanni ÞÍH
-
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
-
Yfirgripsmikil reynsla af starfi í heilsugæslu
-
Frumkvæði og geta til að starfa sjálfstætt
-
Skýr sýn og reynsla af gæðaþróun í heimilislækningum og heilsugæslu
-
Reynsla af vísindarannsóknum og kennslu heilbrigðisstétta æskileg
-
Metnaður til að ná árangri í starfi
-
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
-
Góð hæfni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku
Íslenska
Enska






