

Félagsráðgjafi í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar
Leitað er eftir metnaðarfullum og áhugasömum félagsráðgjafa til starfa í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar. Um er að ræða spennandi tækifæri til að taka þátt í þróun og uppbyggingu þjónustu við börn og fjölskyldur í ört vaxandi sveitarfélaginu Árborg þar sem búa rúmlega 13 þúsund íbúar.
Hjá Velferðarþjónustu Árborgar er lögð rík áhersla á snemmtækan stuðning, samþætta þjónustu og farsæld barna. Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi þar sem unnið er náið með fagfólki á sviði velferðar-, skóla- og frístundaþjónustu með það að markmiði að styrkja stöðu barna og fjölskyldna í samfélaginu.
Í starfinu felst meðal annars að veita ráðgjöf og upplýsingar um þjónustu til forráðamanna, vinna með fjölskyldum og taka þátt í þróun og framkvæmd þjónustu í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021. Að auki er starfsmaður að hluta til að sinna könnun tilkynninga skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002.
Velferðarþjónusta Árborgar er framsækinn vinnustaður þar sem unnið er í nánu samstarfi við öflugan hóp fagfólks. Þar gefst tækifæri til að taka virkan þátt í þróun þjónustu og vinna að mikilvægum verkefnum sem hafa raunveruleg áhrif á líf barna og fjölskyldna.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf.
Í Sveitarfélaginu Árborg búa um 13.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.
- Uppeldis- og foreldraráðgjöf, veitt í viðtölum og á heimilum fólks
- Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur
- Málastjórn samþættrar þjónustu og ráðgjöf samkvæmt farsældarlögum
- Mat á þörf fyrir þjónustu og úrræði, ásamt gerð þjónustu- og stuðningsáætlana
- Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags
- Reglubundin eftirfylgd og mat á árangri þjónustu
- Móttaka, greining og úrvinnsla erinda og umsókna
- Skýrslugerð og skráning
- Könnun barnaverndartilkynninga
- Úttekt á heimilum fólks sem hefur sótt um leyfi að gerast stuðningsfjölskylda
- Starfsréttindi sem Félagsráðgjafi frá Háskóla Íslands
- Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum innan opinberrar þjónustu er skilyrði.
- Þekking og reynsla af starfi sem málstjóri skv. Lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna nr. 86/2021 er skilyrði.
- Þekking og reynsla af könnun barnaverndartilkynninga skv. Barnaverndarlögum nr.80/2002 er skilyrði.
- Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu
- Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu .
- Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu.
- Framúrskarandi hæfni í íslensku.
Íslenska




