

Félagsráðgjafi á velferðarsviði Mosfellsbæjar
Ert þú félagsráðgjafi og vilt taka þátt í að efla velferð og lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar?
Hjá okkur færðu að spreyta þig á fjölbreyttum verkefnum. Þú verður hluti af samhentum hópi fagaðila þar sem stuðningur og samvinna eru í fyrirrúmi.
• Einstaklingsmiðuð ráðgjöf, stuðningur og eftirfylgd með málum einstaklinga og fjölskyldna
• Málstjórn og tengsl við þjónustunotendur með áherslu á virkni, valdeflingu og sjálfstæði
• Móttaka, úrvinnsla og afgreiðsla umsókna m.a. um fjárhagsaðstoð
• Þverfagleg samvinna innan velferðarsviðs og við ytri stofnanir
• Virk þátttaka í að móta, þróa og bæta þjónustu bæjarins
• Starfsréttindi í félagsráðgjöf eru skilyrði
• Þekking á og reynsla af starfi innan félagsþjónustu er kostur
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
• Þekking á málefnum fatlaðs fólks er kostur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma
• Sjálfstæði, skipulagshæfni, samviskusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
• Geta til að vinna undir álagi og forgangsraða verkefnum
• Góð hæfni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
Íslenska
Enska




