Reykjalundur
Reykjalundur
Reykjalundur

Félagsráðgjafi

Viltu verða hluti af samheldnum og metnaðarfullum hópi félagsráðgjafa sem starfar á Reykjalundi.

Laus er til umsóknar staða félagsráðgjafa, sérfræðingur 2, á Reykjalundi. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs, með möguleika á fastráðningu að þeim tíma liðnum.

Á Reykjalundi starfa átta þverfagleg meðferðarteymi á tveimur meðferðarsviðum og er starfið því fjölbreytt. Áhersla er lögð á skjólstæðingsmiðaða nálgun og heildræna sýn.

Í þverfaglegum teymum á Reykjalundi starfa auk félagsráðgjafa, iðjuþjálfar, sjúkraþjálfarar, sálfræðingar, næfingarfræðingar, íþróttafræðingar, sjúkraliðar, hjúkrunarfræðingar og læknar.

Mötuneyti er á staðnum og aðgengi starfsfólks að heilsurækt og sundlaug.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun ágúst eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veitir einstaklingsmiðaða faglega ráðgjöf, stuðning og eftirfylgd í málum einstaklinga og fjölskyldna.
  • Tekur virkan þátt í þverfaglegu teymisstarfi og veitir faglega ráðgjöf til samstarfsaðila.
  • Heldur utan um og sinnir skráningu og eftirfylgd í einstaklingsmálum í samræmi við gildandi lög, reglur og verklagsreglur.
  • Tekur þátt í skipulagningu og framkvæmd fræðslu fyrir sjúklinga og aðra faghópa.

Hæfniskröfur:

  • Íslenskt starfsleyfi gefið út af Embætti landlæknis.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á þverfaglegri teymisvinnu og samstarfi.
  • Áhugi, metnaður og sjálfstæði í starfi.

Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi Félagsráðgjafafélags Íslands og SFV (Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu), auk stofnanasamnings Félagsráðgjafafélags Íslands og Reykjalundar.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf ásamt staðfestingu á námi og sakavottorð.

Öllum umsóknum verður svarað.

Upplýsingar um starfið veita Nadía Borisdóttir, fagstjóri félagsráðgjafar, [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri, [email protected]

Upplýsingar um Reykjalund má finna á heimasíðu Reykjalundar www.reykjalundur.is

Auglýsing birt17. apríl 2026
Umsóknarfrestur30. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Reykjalundur 125400, 270 Mosfellsbær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar