
Rauði krossinn á Íslandi
Rauði krossinn á Íslandi er hluti af stærstu mannúðar- og hjálparsamtökum heims. Allt starf Rauða krossins miðar að því að bregðast við og aðstoða þar sem neyðin er mest.
Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans veita aðstoð og dreifa hjálpargögnum í hverju landi fyrir sig. Þannig tryggir Rauðakrosshreyfingin að hjálpin komist beint til skila til þeirra hópa sem mest þurfa á aðstoð að halda. Landsfélög Rauða krossins og Rauða hálfmánans eru 190 en einungis eitt Rauða kross félag má starfa í hverju landi. Saman mynda Alþjóðaráð Rauða krossins, Alþjóðasambandið og landsfélögin, alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans.

Verkefnafulltrúi hjá Hjálparsíma Rauða krossins 1717
Rauði krossinn á Íslandi óskar eftir að ráða öflugan verkefnafulltrúa til starfa hjá Hjálparsímanum 1717.
Um er að ræða krefjandi og gefandi starf þar sem þú sinnir svörun í síma og netspjalli fyrir einstaklinga sem leita eftir stuðningi vegna ólíkra áskorana í lífi sínu. Starfið felur einnig í sér utanumhald og stuðning við sjálfboðaliða verkefnisins.
Við leitum að einstaklingi með sterka samskiptahæfni, yfirvegun og raunverulega löngun til að styðja við fólk í viðkvæmri stöðu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Svörun í Hjálparsíma Rauða krossins á dagtíma.
- Fræðsla, þjálfun og stuðningur við sjálfboðaliða.
- Samskipti og fræðsla við samstarfsaðila verkefnisins.
- Önnur tilfallandi verkefni sem og þátttaka og stuðningur við annað starf Rauða krossins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi s.s. félagsvísindi, eða á sviði geðheilbrigðis.
- Mjög góð færni í mannlegum samskiptum og menningarlæsi skilyrði.
- Reynsla af því að starfa með fólki í vanda er æskileg.
- Jákvæðni, frumkvæði, samviskusemi og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af starfi með Rauða krossinum er kostur.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál kostur.
Fríðindi í starfi
- Hreyfimínútur
- Samgöngustyrkur
- Líkamsræktarstyrkur
Auglýsing birt28. apríl 2026
Umsóknarfrestur10. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Efstaleiti 9, 103 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiJákvæðniMannleg samskiptiSamskipti í símaSamskipti með tölvupóstiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSveigjanleikiÚtkeyrslaVinna undir álagiÞolinmæði
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Ávísun á farsæld - Verkefnastjóri nýsköpunarverkefnis í þágu barna
Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum

Óska eftir aðstoðarkonu í hlutastarf
NPA miðstöðin

Félagsráðgjafi í barnateymi Velferðarþjónustu Árborgar
Sveitarfélagið Árborg

Starfskraftur í heimaþjónustu
Best heima

Söluráðgjafi véladeildar
Samhentir

Deildarstjóri faghópa á barna- og unglingageðdeild
Landspítali

Sviðsstjóri ráðgjafar
Reykjalundur

Vörustjóri - lækningatæki
Fastus

Félagsráðgjafi
Reykjalundur

Skemmtileg sumarvinna á Andrastöðum
Andrastaðir

Þjónustufulltrúi / Car Rental Agent
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi

Skemmtilegt sumarstarf í þjónustukjarna fyrir geðfatlaða
Mosfellsbær