The House of Beauty
The House of Beauty
The House of Beauty

Erum við að leita að þér?

Ertu með brennandi áhuga, þekkingu og/eða reynslu af heilsu og líkamlegu hreysti?

Þykir þér nútíma tækni áhugaverð sem vinnur t.d. á líkamlegri mótun, svo sem staðbundinni fitusöfnun og húðþéttingu án skurðaðgerða?

Við leitum að metnaðarfullum og sjálfstæðum einstaklingum til að starfa hjá okkur sem meðferðaraðilar og er vinnutími samkomulagsatriði en í boði er að vinna fastar vaktir eða blanda saman morgunvöktum, dagvöktum, kvöldvöktum og/eða helgarvöktum eftir því hvað hentar viðkomandi.

Reynsla af sambærilegu starfi og/eða menntun er ekki skilyrði því allt okkar starfsfólk fer í gegnum metnaðarfulla þjálfun hjá okkur í THOB Academy og þarf að standast öll próf áður en störf hefjast.

Við bjóðum uppá mjög rúman opnunartíma bæði virka daga, kvöld og um helgar og er vinnutími sveigjanlegur.

Við leitum að einstaklingum sem:

  • Eru líkamlega hraustir og almennt með góða orku.
  • Sýna frumkvæði í starfi, eru traustir og eiga auðvelt með að bera ábyrgð.

  • Hafa mjög góða samskiptahæfni.
  • Hafa metnað, reynslu og/eða brennandi áhuga á líkamanum, heilsu og mótun.

  • Eiga auðvelt með að vinna sjálfstætt og í hóp.

    Ef þig langar að starfa hjá okkur, ert líkamlega hraust/ur, ert eldri en 25 ára og átt auðvelt með mannleg samskipti þá viljum við endilega heyra frá þér.

    Hlökkum til að heyra frá þér.

    The House of Beauty - heilsuklínik
    Fákafeni 9
    108 Reykjavik

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fjölbreyttar líkamsmeðferðir þar sem notast er við nútíma tækni við uppbyggingu á heilsu og líkamlegri mótun.
  • Tímabókanir, afgreiðsla og annað tilfallandi.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Góð íslensku og/eða ensku kunnátta er skilyrði.
  • Fagleg framkoma og að eiga auðvelt með samskipti er skilyrði.
  • Reynsla af starfi eða menntun sem við kemur líkamanum er mikill kostur.
  • Brennandi áhugi á líkamlegu hreysti og líkamlegu útliti er skilyrði.
  • Menntun og/eða reynsla sem við kemur líkamanum svo sem hjúkrunarfræði, sjúkraliða, nuddi, sjúkraþjálfun, læknisfræði og/eða líkamlegri þjálfun eru allt miklir kostir en þó ekki nauðsynlegt þar sem starfsfólkið okkar fer í gegnum metnaðarfulla bæði bóklega og verklega þjálfun á meðferðirnar sem kennt er af fagfólki hjá okkur í THOB Academy og þarf að standast öll próf áður en að störf hefjast.
Fríðindi í starfi
  • Við leggjum uppúr notalegu og góðu andrúmslofti bæði fyrir starfsfólk og viðskiptavini og er okkur sérstaklega mikilvægt að starfsfólki líði vel í starfi hjá okkur.
  • Mikill sveigjanleiki vinnutíma.
Um okkur

The House of Beauty er heilsuklínik sem opnaði dyrnar árið 2018 með áherslu á byltingarkenndar líkamsmeðferðir til að vinna á líkamlegu útliti og heilsu án skurðaðgerða.

Við erum stolt af því að við unnum til alþjóðlegra verðlauna sem besta klínikið í líkamsmótun árin 2022 og 2023 frá World Salon Awards.

Við bjóðum uppá langa opnunartíma til að anna eftirspurn oft frá kl 7:00 - 23:00 á kvöldin, að auki sem opið er bæði laugardaga og sunnudaga.

Það starfa að öllu jöfnu hjá okkur um 10-12 meðferðaraðilar fyrir utan framkvæmdastjóra.

www.thehouseofbeauty.is

Auglýsing birt23. september 2024
Umsóknarfrestur6. október 2024
Tungumálahæfni
EnskaEnskaFramúrskarandi
ÍslenskaÍslenskaFramúrskarandi
Staðsetning
Fákafen 9, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AfgreiðslaPathCreated with Sketch.EinkaþjálfunPathCreated with Sketch.HjúkrunarfræðingurPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.Líkamlegt hreystiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.SjúkraliðiPathCreated with Sketch.SjúkranuddariPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar