Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Ert þú söludrifinn viðskiptastjóri?

Öryggismiðstöðin leitar að öflugum viðskiptastjóra í öryggislausnum í söluteymi okkar. Ef þú hefur brennandi áhuga á tæknilegum lausnum og virkni þeirra, ert með þekkingu á sviði öryggislausna eða öðrum tæknilausnum, og hefur reynslu af sölu og samskiptum við viðskiptavini, þá viljum við heyra frá þér!

Lýsing á starfi:

Starfið felst í sölu, ráðgjöf og samskiptum við viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Unnið er náið með öllum sviðum fyrirtækisins með það að markmiði að stuðla að vexti viðskiptasambanda og ánægju viðskiptavina.

Umsókn:

Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar, hæfni sinni og getu til að mæta kröfum starfsins.

Við hlökkum til að taka á móti umsókn þinni og bjóða þér í kraftmikið umhverfi þar sem fagmennska og metnaður eru í fyrirrúmi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Sverrir Ingi Ólafsson, [email protected]

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ráðgjöf og sala fjölbreyttra öryggislausna og þjónustu.
  • Dagleg umsjón, samskipti við viðskiptavini og sérþekking á öryggislausnum.
  • Kynningar á vöruframboði.
  • Tilboðs- og samningagerð.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Menntun á sviði rafiðngreina, tækni-/verk-/tölvunar-/ viðskiptafræði eða sambærileg menntun er nauðsynleg.
  • Samskiptahæfni, skipulagshæfileikar og frumkvæði til að afla sér nýrrar þekkingar er nauðsynleg.
  • Hæfni til þess að halda kynningar og setja fram upplýsingar á skýran hátt er nauðsynleg.
  • Áhugi, forvitni og skilningur á tæknilegum lausnum og hugbúnaði er nauðsynlegur.
  • Þekking og reynsla af öryggislausnum eða öðrum tæknilausnum er kostur.
  • Hugbúnaðarþekking er mikilvæg, þar með talið góð tölvukunnátta, t.d. í Excel og Power Point. Þekking á Business Central er kostur.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Auglýsing birt4. janúar 2026
Umsóknarfrestur25. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar