Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin
Öryggismiðstöðin

Öryggisverðir í sumarstörf

Langar þig í spennandi sumarstarf þar sem þú getur haft áhrif á öryggi og velferð annarra?

Öryggismiðstöðin leitar að metnaðarfullu starfsfólki í fjölbreytt og krefjandi störf á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ. Við óskum eftir jákvæðum og sjálfsöruggum öryggisvörðum sem geta tekið ákvarðanir fljótt og vel.

Hvað bjóðum við þér?

  • Vaktavinnukerfi - 100% starf á 5-5-4 eða 7-7 vaktakerfi, eða hlutastarf
  • Fjölbreytt verkefni í framsæknu umhverfi
  • Þjálfun í Öryggisskólanum
  • Tækifæri til starfsþróunar innan Öryggismiðstöðvarinnar
  • Samheldinn vinnustað með stuðningi reyndra starfsfélaga

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Almenn öryggisgæsla og þjónusta á vegum fyrirtækisins
  • Aðstoð við viðskiptavini við úrlausn öryggistengdra verkefna
  • Almenn ábyrgð á öllum búnaði sem öryggivörður hefur til umráða hverju sinni
  • Skýrslugerð og upplýsingamiðlun eftir þörfum

Nauðsynleg hæfni:

  • Gild ökuréttindi
  • Hrein sakaskrá
  • Góð enskukunnátta
  • Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Reynsla í öryggis- eða þjónustustörfum

Æskileg hæfni

  • Góð íslenskukunnátta
  • Þekking á skyndihjálp eða viðbragðsþjálfun

Umsóknarferli og frekari upplýsingar:

Starfstímabilið er frá apríl/maí til ágúst/september 2026.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. Starfsmenn þurfa að skila inn sakavottorði og lágmarksaldur er 20 ára. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá.

Starfið er á sviði Mannaðra lausna sem veitir fjölbreytta þjónustu öryggisvarða, meðal annars verðmætaflutninga og almenna öryggisgæslu fyrir viðskiptavini Öryggismiðstöðvarinnar. Öryggismiðstöðin er framsækið þjónustufyrirtæki sem býður upp á fjölbreyttar lausnir og þjónustu í öryggis-og velferðartækni, fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Við leggjum áherslu á vandaða og persónulega þjónustu með gildi fyrirtækisins að leiðarljósi, forystu, umhyggju og traust.

Nánari upplýsingar má fá með því að senda tölvupóst á [email protected]

Auglýsing birt8. janúar 2026
UmsóknarfresturEnginn
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Flugvallarbraut 740, 235 Reykjanesbær
Askalind 1, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar