

Ert þú næsti verslunarstjóri dömudeildar Gallerí Sautján?
Ert þú söludrifin, með ríka þjónustulund, skipulögð og með næmt auga fyrir tísku?
Gallerí Sautján Kringlu óskar eftir ráða öfluga og drífandi manneskju til að sinna starfi verslunarstjóra. Um er að ræða fullt starf í lifandi og fjölbreyttu starfsumhverfi.
Viðkomandi þarf að vera með ríka þjónustulund, eiga gott með mannleg samskipti, snyrtileg og skipulögð ásamt því að vera með jákvætt viðmótt. Reynsla og þekkingu af verslunarstjóra- og sölustörfum er mjög góður kostur.
Helstu hlutverk verslunarstjóra eru að halda utan um daglegan rekstur, innkaup og framleiðsla, bera ábyrgð á sölu og þjónustu við viðskiptavini, ásýnd verslunar ásamt því að leiða hóp starfsmanna.
Gott er ef viðkomandi getur hafið störf sem fyrst.
Gallerí Sautján er ein af verslunum NTC sem er lifandi og fjölbreytt fyrirtæki sem starfrækir 14 eigin verslanir á höfuðborgarsvæðinu, vefverslun, saumastofu í Reykjavík, eigin fataframleiðslu erlendis og heildsölu sem selur fatnað og fylgihluti til margra verslana á Íslandi. Hjá NTC starfa um 140 manns þar sem lagt er mikið uppúr góðum starfsanda og sterkri liðsheild.
NTC hefur margoft hlotið viðurkenningar frá VR sem fyrirmyndafyrirtæki og eins viðurkenningar frá CreditInfo sem framúrskarandi fyrirtæki.
- Daglegur rekstur á dömudeild Gallerí Sautján
- Sala og framúrskarandi þjónusta við viðskiptavini
- Vöruinnkaup og framleiðsla
- Eftirfylgni með fjárhagsáætlun fyrir innkaup
- Mannaforráð og almenn starfsmannamál
- Gerð vaktaplana
- Taka upp vörur, útstillingar og önnur almenn verslunarstörf
- Samfélagsmiðlar
- Reynsla af sölustörfum eða menntun sem nýtist í starfi er góður kostur
- Framúrskarandi þjónustulund og jákvætt viðmót
- Næmt auga og áhugi á tísku
- Færni í mannlegum samskiptum, drifkraftur og vinna vel í teymi
- Frumkvæði ásamt sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum
- Metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samfélagsmiðlakunnátta er kostur
Íslenska










