
Einingaverksmiðjan
Einingarverksmiðjan er staðsett í nýju verksmiðjuhúsnæði að Koparhellu 5, 221 Hafnarfirði.
Einingaverksmiðjan ehf. var stofnuð árið 1994. Frá upphafi hefur Einingaverksmiðjan sérhæft sig í og framleitt forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp gríðarlega sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 75 starfsmenn.

Leitum að öflugum sölu- og markaðsfulltrúa
Einingaverksmiðjan leitar að öflugum, hugmyndaríkum og metnaðarfullum sölu- og markaðsfulltrúa. Um er að ræða 100% starf. Við erum staðsett í nýrri og glæsilegri verksmiðju að Koparhellu 5 í Hafnarfirði.
Starfið felst meðal annarra verkefna í sölu á forsteyptum lausnum fyrirtæksins og leitum við því að einstakling sem hefur jákvætt viðmót og á mjög auðvelt með samskipti. Kostur ef viðkomandi hefur þekkingu og reynslu af byggingariðnaði, auk reynslu af sölumálum.
Einingaverksmiðjan sérhæfir sig í og framleiðir forsteyptar lausnir fyrir breiðan hóp viðskiptavina og hefur byggt upp gríðarlega sérþekkingu og áratuga verkkunnáttu. Hjá fyrirtækinu starfa um 80 starfsmenn.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sala á vörum fyrirtækisins
- Magntaka, tilboðsgerð og eftirfylgni tilboða
- Uppfæra verkframvindur og gerð reikninga
- Undirbúningur og stjórnun viðburða á vegum Einingaverksmiðjunnar
- Uppfæra vef og samfélagsmiðla
- Hönnun og gerð auglýsinga og markaðsefnis
- Markaðs og kynningarmál
- s.s. mæting á viðburði i byggingariðnaði, móttaka hópa og viðskiptavina
- Heldur utan um mótun og innleiðingu umhverfismælikvarða
- Önnur verkefni sem yfirmaður felur starfsmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla og þekking af byggingariðnaði æskileg
- Reynsla og þekking af sölumálum kostur
- Reynsla af vefumsjón, samfélagsmiðlum og markaðsmálum
- Þekking og reynsla af hönnun og gerð markaðsefnis/auglýsinga
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta
- Jákvætt viðmót og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæð, fagleg og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð tölvukunnátta
Auglýsing birt21. nóvember 2025
Umsóknarfrestur14. desember 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Koparhella 5
Starfstegund
Hæfni
SamviskusemiSjálfstæð vinnubrögð
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Aðalbókari hjá Stólpa - spennandi og krefjandi starf
Stólpi ehf

Sérfræðingur á fjármálasviði
Bláa Lónið

Ert þú næsti verslunarstjóri dömudeildar Gallerí Sautján?
Galleri Sautján

Sölu- og þjónusturáðgjafar
Nova

Sölumaður á húsgagnasviði Pennans
Penninn Húsgögn

Sérfræðingur í markaðssetningu
VÍS

Starfsmaður í almenn skrifstofustörf
MD Vélar ehf

Egilsstaðir: Framtíðarstarf í timbursölu
Húsasmiðjan

Fullt starf í móttöku Hårklinikken
Hårklinikken

Bókari á fjármálasviði
Avis og Budget

Augastaður - sölufulltrúi í verslun
Augastaður

Viltu spennandi hlutastarf í úthringingum?
Símstöðin ehf