Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær
Sumarstörf - Kópavogsbær

Efling tómstundastarfs fullorðinna

Starfsmaður sinnir félagslegum þörfum aldraðra Kópavogsbúa sem hafa einangrast í kjölfar COVID-19 með heimsóknum og símtölum, ýmist í gegnum síma eða spjaldtölvur. Starfsmaður veitir félagsskap og samveru og leitar leiða til að auka lífgæði notenda með því að eiga samverustundir innan og utan heimilis, tengja í félagsstarf og/eða auka tengsl þeirra við það sem hugur þeirra stendur til. Hann leiðbeinir með notkun spjaldtölva eftir þörfum. Starfsmaður sinnir einstaklingsþjónustu sem og hópum eftir þörfum og áhugamálum. Hann leitar leiða til að auka virkni og lífsgæði aldraðra. Starfsmaður hefur aðstöðu í félagsmiðstöð aldraðra.

Um er að ræða tímabundið sumarstarf / átaksverkefni Vinnumálastofnunnar í tvo og hálfan mánuð á tímabilinu júní - ágúst.

Skilyrði er að umsækjendur séu 20 ára á árinu eða eldri, séu skráðir í nám að hausti 2021 eða skráðir í nám á vorönn 2021. Umsókn þarf að fylgja staðfesting á námi.

Menntunar- og hæfniskröfur
Góð almenn menntun sem nýtist í starfi
Reynsla af starfi með öldruðum er kostur
Góðir samskiptahæfileikar
Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og hugmyndaauðgi
Gott vald á íslensku
Helstu verkefni og ábyrgð
Veitir félagslegan stuðning og hvatningu í formi samtals og hlustunar.
Leitar leiða til að efla félagslega virkni notenda.
Kennir þeim notendum sem áhuga hafa á spjaldtölvu, internet og viðeigandi forrit.
Leiðir litla hópa í félagsstarfi og virkni.
Miðlar upplýsingum og leiðbeinir notendum um þjónustu sem í boði er
Auglýsing birt1. maí 2021
Umsóknarfrestur10. maí 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Digranesvegur 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar