Vodafone og Stöð 2
Vodafone og Stöð 2
Vodafone og Stöð 2

Deildarstjóri uppgjöra og reikningsskila

Fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækið Sýn leitar að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi til að leiða öflugan hóp starfsmanna uppgjöra og reikningsskila. Starfið hentar einstaklingum með mikla reynslu af reikningshaldi og fjármálaferlum fyrirtækja. Einstaklingurinn verður mikilvægur þátttakandi í spennandi breytingavegferð sem fyrirtækið er á. Starfið heyrir beint undir fjármálastjóra. Umbóta- og ferlahugsun er mikilvæg ásamt jákvæðu hugarfari.

Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði
Mikil reynsla og góð þekking á reikningsskilum og uppgjörsvinnu er skilyrði
Góð þekking á fjárhagskerfum skilyrði t.d. Navision
Löggilding í endurskoðun er kostur
Reynsla af stjórnun og mannaforráðum kostur
Hæfni og áhugi til að taka þátt í og stýra breytingum
Helstu verkefni og ábyrgð
Yfirumsjón með bókhaldi félagsins
Mánaðar- og ársfjórðungsuppgjör félagsins
Umsjón og þátttaka í umbótaverkefnum t.d. sjálfvirknivæðingu fjárhagsferla
Samskipti við endurskoðendur félagsins
Upplýsingagjöf og stuðningur við stjórnendur
Dagleg stýring deildar
Auglýsing birt8. janúar 2022
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Suðurlandsbraut 8, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar