Álfhólsskóli
Álfhólsskóli
Álfhólsskóli

Deildarstjóri unglingastigs í Álfhólsskóla

Álfhólsskóli óskar eftir að ráða deildarstjóra unglingastigs fyrir skólaárið 2024-2025.

Í Álfhólsskóla eru um 600 nemendur í 1.-10. bekk og um 130 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er í innleiðingarferli sem réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.

Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Faglegur leiðtogi innan skóla í að stuðla að framþróun og nýbreytni í kennsluháttum og kennsluaðferðum s.s. samþættingu námsgreina, þemavinnu, námsmats og nýtingu upplýsingatækni í skólastarfi.
  • Fylgist með nýjungum á sviði kennslu og er leiðandi í faglegri umræðu.
  • Stýrir daglegu starfi á unglingastigi skólans ásamt starfsmannahaldi þar eins og við á.
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Kennaramenntun og réttindi til kennslu
  • Viðbótarmenntun nem nýtist í starfi æskileg
  • Reynsla af stjórnun æskileg
  • Þekking og reynsla á teymiskennslu, leiðsagnarmati og samþættingu námsgreina æskileg
  • Þekking og áhugi á kennslu- og uppeldisfræði
  • Þolinmæði og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Stundvísi og áreiðanleiki
  • Mjög góð þekking á Mentor, upplýsingatækni og notkun rafrænna miðla í kennslu og starfi
Fríðindi í starfi

Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins.

Auglýsing stofnuð20. apríl 2024
Umsóknarfrestur4. maí 2024
Staðsetning
Álfhólsvegur 120, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar