
Barnaskóli Kársness
Við Skólagerði í Kópavogi er að rísa ný og nútímaleg skólabygging, þar sem áður stóð gamli Kársnesskóli. Nýr skóli mun taka þar til starfa haustið 2025 - Barnaskóli Kársness.
Skólinn mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Byggingin verður öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi. Í skólanum verða 60 – 80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.

Deildarstjóri stoðþjónustu í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness er nýr skóli sem mun hýsa fjögurra deilda leikskóla og yngsta stig grunnskóla ásamt frístund. Unnið er að uppbyggingu skólans og mun byggingin verða öll hin glæsilegasta sem skapar spennandi tækifæri í skólastarfi fyrir um 60-80 leikskólabörn og um 300 nemendur í 1.-4. bekk.
Við leitum að metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi sem vill leiða stoðþjónustu skólans og veita faglega forystu. Um spennandi starf er að ræða fyrir einstakling sem vill taka þátt í uppbyggingu og mótun skólastarfs í nýjum skóla, börnum til heilla.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stýrir daglegu starfi innan stoðþjónustu skólans ásamt því að sinna starfsmannahaldi þar eins og við á
- Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk
- Aflar og miðlar upplýsingum innan sem utan skóla vegna nemenda sem glíma við áskoranir
- Vinnur að einstaklingsáætlunum í samstarfi við sérkennara
- Boðar og stýrir skilafundum vegna nemenda með sérþarfir í samstarfi við deildarstjóra stigs
- Heldur utan um skimanir og greiningar nemenda
- Styður við starfsfólk stoðþjónustunnar og veitir faglega ráðgjöf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Kennaramenntun og leyfisbréf kennara og/eða menntun á sviði sérkennslu, þroskaþjálfa, atferlisþjálfa, eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af sérkennslu æskileg
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, þolinmæði, umburðarlyndi og víðsýni
- Stundvísi og áreiðanleiki
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góð samstarfshæfni og sveigjanleiki
- Skipulagshæfileikar
- Góð þekking á upplýsingatækni
- Mjög góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
Starfsfólk Kópavogsbæjar fær frían aðgang að sundlaugum bæjarins
Styttri vinnuvika
Auglýsing birt9. apríl 2025
Umsóknarfrestur30. apríl 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn
Staðsetning
Skólagerði 1, 200 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (6)

Skólastjóri nýs samrekins leik- og grunnskóla í Kópavogi
Barnaskóli Kársness

Matreiðslumaður í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Textílkennari í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

ÍSAT kennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Umsjónarmaður skólahúsnæðis í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness

Leikskólakennari óskast í Barnaskóla Kársness
Barnaskóli Kársness
Sambærileg störf (12)

Umsjónarkennari á miðstig skólaárið 2025 - 2026
Selásskóli

Forstöðumaður bókasafns / skjalavarsla
Hrunamannahreppur

Leikskólakennari
Regnboginn

Leikskólakennari óskast í leikskólann Kirkjuból
Leikskólinn Kirkjuból

Ert þú í leit að skemmtilegu starfi?
Efstihjalli

Tónlistarkennari/kórstjóri á Hólmavík
Sveitarfélagið Strandabyggð

Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast til starfa
Leikskólinn Blásalir

Sérkennsla í Blásölum
Leikskólinn Blásalir

Náttúrufræðikennari á unglingastigi óskast
Kársnesskóli

Umsjónarkennari á miðstig í Salaskóla! Nú er tækifærið!
Salaskóli

Leikskólinn Akrar auglýsir eftir leikskólakennara
Leikskólinn Akrar

Kennari, fullt starf
Seltjarnarnesbær