

Leikskólakennari
Regnboginn leikskóli óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% stöðu.
Regnboginn er 3ja deilda, einkarekinn leikskóli í Ártúnsholti, Reykjavík. Leikskólinn vinnur í anda Reggio Emilia stefnunnar með áherslu á skapandi starf, tilfinningalega styðjandi umhverfi og læsi.
Daglegur vinnutími er 7 klst og 15 mínútur.
Einkunnarorð skólans eru "Börn eru merkilegt fólk" og gildin okkar eru gleði - virðing - umhyggja. Við viljum skapa barnvænt umhverfi, rækta tillitsemi, vináttu og kærleika og stuðla þannig að góðum samskiptum.
Okkar sýn er sú að öll börn séu sterk og hæfileikarík, hvert á sinn hátt.
Ef þú ert að leita að faglegum, metnaðarfullum og notalegum vinnustað með frábæru samstarfsfólki þá er Regnboginn rétti staðurinn fyrir þig.
Nánari upplýsingar veitir Fanney Guðmundsdóttir, skólastjóri, gegnum netfangið [email protected]
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
- Að stuðla að velferð barna
- Þátttaka í teymisstarfi, foreldrasamskiptum og faglegum verkefnum skólans
- Tileinkar sér og vinnur skv. stefnu Regnbogans
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla af leikskólastarfi
- Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum - gleði, virðing, umhyggja
- Frumkvæði í starfi og stundvísi
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Mjög góð íslenskukunnátta er nauðsynleg












