

Deildarstjóri hjá leikskóla Kaldrananeshrepps
Um er að ræða nýja stöðu innan sveitarfélagsins en leikskóli hefur ekki verið starfræktur hjá Kaldrananeshreppi í sjö ár. Áætlað er að opna leikskóla á ný, haustið 2026 í húsnæði Grunnskóla Drangsness þar sem gert er ráð fyrir 5-7 nemendum fyrsta starfsárið.
Óskað er eftir að ráða deildarstjóra í 100% starfshlutfall. Leitað er eftir öflugum einstakling sem hefur farsæla reynslu af starfi á leikskóla og með framúrskarandi samskiptahæfileika.
Unnið yrði undir stjórn skólastjóra Grunnskóla Drangsness og mun viðkomandi koma að því að móta skólastarfið.
Gert er ráð fyrir tíma til undirbúnings áður en leikskóli opnar í samráði við skólastjóra fyrir sumarfrí.
-
Leikskólakennaranám og leyfisbréf til kennslu.
-
Farsæl reynsla af starfi á leikskóla.
-
Óskað er eftir jákvæðum, sjálfstæðum, ábyrgum og sveigjanlegum einstaklingum.
-
Afar mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúinn til að takast á við skemmtilegt starf með börnum.
-
Viðkomandi þarf að vera tilbúinn til að leita og nýta tækifærin sem gefast við mótun skólans með skólaþróun að leiðarljósi.
-
Umsækjandi þarf að hafa gott vald á íslensku, bæði í töluðu og rituðu máli og geta átt samskipti á íslensku við nemendur, samstarfsfólk og foreldra.
-
Hreint sakavottorð skv. lögum um leikskóla.
Stytting vinnuvikunnar
Íslenska










