

Leikskólinn Völlur -Sérkennslustjóri
Starfssvið: Sérkennslustjóri
Leikskólinn Völlur á Ásbrú auglýsir eftir metnaðarfullum sérkennslustjóra sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, framsækna skólasýn og er tilbúinn að leggja sitt af mörkum.
Leikskólinn Völlur er sex kjarna leikskóli með 95-110 nemendum sem er aldurs og kynjaskiptur. Um 75% barna eru tví-eða fjöltyngd og eru þjóðerni nemenda því fjölbreytt.
Námskrá leikskólans byggir á hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Svokallaðar meginreglur liggja til grundvallar allri hugmyndafræði Hjallastefnunnar. Unnið er að innleiðingu Heillaspora.
Einkunnarorð Vallar eru: Agi-Jákvæðni-Sjálfstyrking-Vinátta-Samskipti-Áræðni
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og er mikilvægt að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
- Vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna.
- Ber ábyrgð á og stjórnar skipulagningu, framkvæmd og endurmati sérkennslu í samstarfi við aðra stjórnendur leikskólans.
- Er faglegur umsjónaraðili sérkennslu í leikskólanum, annast ráðgjöf til annarra starfsmanna leikskólans og upplýsingagjöf til foreldra.
- Hefur umsjón með uppeldis- og námsgögnum leikskólans sem tengjast sérkennslu.
- Ber ábyrgð á að börnum sem njóta sérkennslu í leikskólanum sé boðið upp á þroskavænleg verkefni.
- Veitir foreldrum/forráðamönnum barna sem njóta sérkennslu stuðning, fræðslu og ráðgjöf.
- Sinnir sérkennslu barna og barnahópa með íhlutun.
- Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni.
- Leyfisbréf sem leikskólakennari (leyfisbréf fylgi umsókn).
- Framhaldsmenntun í sérkennslu æskileg.
- Þekking og reynsla af sérkennslu í leikskólum.
- Einlægur áhugi fyrir velgengni allra barna.
- Góð hæfni í mannlegum í samskiptum.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og faglegur metnaður.
- Góð íslenskukunnátta.
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Íslenska










