Dagdvöl og dagþjálfun Sólvangs
Langar þig til að starfa í fjölbreyttu og gefandi starfsumhverfi og um leið auðga líf fólks á efri árum? Dagdvöl og dagþjálfun Sólvangs leitar að starfsfólki með hjartað á réttum stað.
Á Sólvangi er sérhæfð dagþjálfun fyrir einstaklinga með heilabilun og einnig er þar almenn dagdvöl.
Við leitum að almennum starfsmönnum og/eða félagsliðum sem hafa áhuga á samskiptum við fólk og eru tilbúnir að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni.
Í boði er hlutastarf alla virka daga frá kl. 9:00 til 15:30.
Meðal verkefna eru ýmis konar hreyfing, bæði inni og úti, aðstoð við athafnir daglegs lífs og þátttaka í fjölbreyttu hópastarfi.
- Færni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
- Jákvæðni og stundvísi
Að styðja aldraða einstaklinga til þess að geta búið á eigin heimilum sem lengst og rjúfa félagslega einangrun.
Að viðhalda og örva einstaklinga til betri andlegrar, líkamlegrar og félagslegrar heilsu.
Áhersla er lögð á sjálfræði, samveru og samvinnu.
Lögð er áhersla á góðan starfsanda. Einstaklingar á öllum aldri eru hvattir til að sækja um. Sólvangur er jafnlaunavottað fyrirtæki og greiðir laun samkvæmt kjarasamning viðkomandi stéttarfélags og SFV.
Nánari upplýsingar veitir Sigrún Sæmundsdóttir deildarstjóri, í gegnum tölvupóstfangið sigrunsae@soltun.is eða í síma 6120985.