Leikskólinn Rofaborg
Leikskólinn Rofaborg er staðsettur í Árbæjarhverfi við rætur Elliðaárdalsins sem er ein af fegurstu náttúruperlum borgarinnar. Í Rofaborg dvelja 110 börn á 5 aldurskiptum deildum.
Sérkennsla í Rofaborg
Leikskólasérkennari, þroskaþjálfi, atferlisfræðingur, leikskólakennari eða aðili með aðra uppeldismenntun óskast til starfa í leikskólann Rofaborg. Athygli er vakin á því að ef ekki næst að ráða einstakling með menntun á sviði uppeldis og kennslu kemur til greina að ráða einstakling með reynslu af svipuðum störfum.
Rofaborg er rótgróinn leikskóli í hjarta Árbæjar. Við leitum að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að takast á við skemmtileg og krefjandi verkefni, vaxa í starfi og aðstoða litla fólkið sem hér dvelur að þroskast og dafna. Rofaborg er líflegur starfsstaður þar sem lögð er áhersla á að nýta styrkleika hvers og eins svo að allir hafi tækifæri á að hafa áhrif á stafið.
Útikennsla, hreyfing og sköpun er ríkur þáttur í starfi leikskólans hjá öllum börnum, sem og félgasfærniþjálfun, málörvun og læsi.
Starfið felst í að sjá um þjálfun og kennslu barns með sérþarfir. Starfið er unnið undir handleiðslu sérkennslustjóra og í samvinnu við viðkomandi deildarstjóra og annað starfsfólk deildarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
-
Að sinna kennslu og þjálfun barns með sérþarfir.
-
Að skipuleggja og endurmeta kennsluáætlanir í samvinnu við sérkennslustjóra.
-
Að vera í samstarfi við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
-
Taka þátt í skipulagningu faglegs starfs í samstarfi við deildarstjóra.
-
Sinna daglegum verkefnum deildarinnar í samstarfi við deildarstjóra og annað starfsfólk.
Menntunar- og hæfniskröfur
-
Menntun sem nýtist í starfi s.s. leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara, þroskaþjálfafræðimenntun, hagnýt atferlsgreining, iðjuþjálfun, sérkennaramenntun eða önnur menntun tengd uppeldi, þroska og kennslu barna.
-
Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
-
Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg.
-
Hæfni og sveigjanleki í samskiptum.
-
Ábyrgð og áreiðanleiki.
-
Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
-
36 stunda vinnuvika miðað við fullt starf
-
Frítt í sund í allar sundlaugar í Reykjavík
-
Íþróttastyrkur kr. 16.000.- eftir 6 mánuði í starfi
-
Forgangur fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
-
Afsláttur af leikskólagjaldi fyrir barn í leikskóla í Reykjavík
-
Samgöngusamningur - kr. 7.500, ef notaður er vistvænn ferðamáti að mestu leyti
-
Frítt á söfn í Reykjavík og Borgarbókasafnið
-
Boðið er upp á heitan mat í hádeginu, morgunmat og síðdegishressingu.
Auglýsing birt16. september 2024
Umsóknarfrestur30. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Skólabær 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
JákvæðniMannleg samskiptiMetnaðurSjálfstæð vinnubrögðUmönnun (barna/aldraðra/fatlaðra)Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)
Skemmtilegt starf í góðum félagsskap
Kársnesskóli
Leikskólasérkennari / þroskaþjálfi í Grænuborg
Leikskólinn Grænaborg
Hjalli í Hafnarfirði auglýsir eftir leikskólakennurum
Hjallastefnan leikskólar ehf.
Frístundastarfsmaður óskast
Helgafellsskóli
Leikskólastarfsfólk óskast
Helgafellsskóli
Stuðningsfulltrúi í frístundaheimilið- Gulahlíð
Kringlumýri frístundamiðstöð
Sérkennslustjóri - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Vilt þú hjálpa okkur að hjálpa öðrum?
Samhjálp
Viltu hafa áhrif á dýrmæta einstaklinga? Komdu til okkar
Leikskólinn Sjáland
Deildarstjóri í teymisvinnu
Heilsuleikskólinn Kór
Deildarstjóri frístunda barna og unglinga
Fjarðabyggð
Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast
Lækur