Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Velferðasvið ber ábyrgð á áætlanagerð, samhæfingu og samþættingu verkefna á sviði velferðarþjónustu, eftirliti í samræmi við lög, reglur, samþykktir og pólitíska stefnu í velferðarmálum, mat á árangri og þróun velferðarþjónustu og nýrra úrræða og gerð þjónustusamninga um framkvæmd þjónustunnar. Velferðarsvið býr Reykjavíkurborg ennfremur undir að taka við nýjum velferðarverkefnum frá ríki svo sem í málefnum fatlaðra, öldrunarþjónustu og heilsugæslu.
Velferðarsvið ber ábyrgð á framkvæmd þjónustu á sviði velferðarmála, þar með talinni félagsþjónustu fyrir alla aldurshópa og barnavernd. Velferðarsvið ber ábyrgð á rekstri þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar og starfseininga sem undir þær heyra. Velferðarsvið vinnur með velferðarráði og barnaverndarnefnd og sinnir málefnum þeirra. Þjónustumiðstöðvar vinna með hverfaráðum í hverfum borgarinnar.
Velferðarsvið sér einnig um rekstur miðlægrar velferðarþjónustu þvert á borgina, átaksverkefna vegna endurhæfingar fólks, heildstæðu forvarnastarfi í Reykjavík, inntöku í húsnæðis- og búsetuúrræði, rekstur hjúkrunarheimila, rekstur framleiðslueldhúss og rekstur heimahjúkrunar í Reykjavík samkvæmt samningi við ríkið þar um.
Starfsfólk í viðbragðsteymi
Norðurmiðstöð óskar eftir starfsfólki til starfa í viðbragðsteymi heimaþjónustu. Um er að ræða hlutastörf í dagvinnu með sveigjanlegum vinnutíma og er ráðningartímabil samkomulag. Starfshlutfall getur verið frá 40-80% eftir samkomulag. Starfið hentar vel með háskólanámi, s.s. á félags-, heilbrigðis- eða menntavísindasviði.
Í Norðurmiðstöð er veitt fjölbreytt þjónusta á sviði velferðar-, skóla- og frístundamála fyrir Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna tiltekt og þrifum á heimilum þar sem veruleg þörf er á og áður en almenn félagsleg heimaþjónusta getur hafist.
- Veita félagslegan stuðning og hvatningu er varðar umhirðu heimilis og/eða persónulega umhirðu. Ásamt því að styðja notendur til að þiggja almenna félagsþjónustu.
- Vinnan byggir á reglulegum samskiptum við þjónustumiðstöðvar og/eða aðra þá sem koma að málum notenda.
- Starfsfólk vinnur á heimilum notenda þar sem mikil þörf er á aðstoð og geta notendur átt við geðræn veikindi eða fíknivanda að stríða.
- Mikilvægt er að viðkomandi treysti sér í að sinna verkefnum inni á heimilum við krefjandi aðstæður.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. félagsliðamenntun eða sambærileg.
- Íslenskukunnátta á stigi B1-C1, samkvæmt samevrópska matskvarðanum.
- Gilt ökuleyfi
- 20 ára aldurstakmark
- Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Reykjavíkurborgar.
- Umburðarlyndi og virðing fyrir manneskjunni í hvaða aðstæðum sem er.
- Jákvæðni, sveigjanleiki og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
- Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæð í vinnubrögðum.
- Hæfni til að takast á við krefjandi vinnuumhverfi
- Reynsla af krefjandi verkefnum í félagslegri heimaþjónustu eða umönnun kostur.
- Reynsla af vinnu með fólki í fíknivanda kostur.
Fríðindi í starfi
- Sund og menningarkort
- Heilsustyrkur
- Samgöngustyrkur
- Stytting vinnuvikunnar
Auglýsing birt9. september 2024
Umsóknarfrestur23. september 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaMeðalhæfni
Staðsetning
Efstaleiti 1, 103 Reykjavík
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Hentugt fyrir
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (7)
Iðjuþjálfi í heimahjúkrun í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Vesturmiðstöð auglýsir eftir hjúkrunarfræðing í heimahjúkrun
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Vilt þú starfa í Skjáveri Velferðarsvið Reykjavíkurborgar?
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Þjónustufulltrúi hjá Rafrænni miðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sálfræðingur í deild barna og fjölskyldna í Vesturmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Heimastuðningur Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Sambærileg störf (12)
Starfsmaður í skammtímadvöl - Svöluhraun
Hafnarfjarðarbær
Vilt þú hjálpa okkur að hjálpa öðrum?
Samhjálp
Óska eftir hressum húmoristum í teymið mitt!
NPA miðstöðin
Starfsmaður í umönnun - Dagvaktir
Sóltún hjúkrunarheimili
Stuðningur við fötluð börn óskast í vetrarfrístund í Fjarðab
Fjarðabyggð
Sérkennsla í Rofaborg
Leikskólinn Rofaborg
Flokkstjóri í heimaþjónustu
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Heimastuðningur Norðurmiðstöð
Reykjavíkurborg - Velferðarsvið
Dagdvöl og dagþjálfun Sólvangs
Sólvangur hjúkrunarheimili
Umönnun, 80-100% starf - Eir, Hamrar og Skjól
Eir, Skjól og Hamrar hjúkrunarheimili
Iðjuþjálfi - Hrafnista Laugarási
Hrafnista
Félagsleg liðveisla / einstaklingsstuðningur
Seltjarnarnesbær