VEKTOR
VEKTOR
VEKTOR

Byggingaverk- eða tæknifræðingar

VEKTOR - hönnun og ráðgjöf óskar eftir að ráða verkfræðing eða tæknifræðing til starfa.

Vektor er 25 ára gamalt ráðgjafa og hönnunarfyrirtæki á sviði húsbygginga og hjá fyrirtækinu starfa nú 12 manns.

Um er að ræða krefjandi starf á skemmtilegum vinnustað, við fjölbreytt og spennandi verkefni í metnaðarfullum félagsskap sérfræðinga.

Í boði eru samkeppnishæf laun.

STARFS- OG ÁBYRGÐARSVIÐ

Um er að ræða tvö störf fyrir byggingaverkfræðing eða byggingatæknifræðing.

1. Verkfræðingur eða tæknifræðingur á lagnasviði

  • Helstu verkefni eru hönnun lagna íbúða- og atvinnuhúsnæðis.

2. Verkfræðingur eða tæknifræðingur á burðarþolssviði

  • Helstu verkefni eru hönnun burðarþols íbúða- og atvinnuhúsnæðis.


HÆFNISKRÖFUR

  • Háskólamenntun í byggingaverkfræði eða byggingatæknifræði.
  • Góð kunnátta í AutoCad er skilyrði
  • Góð kunnátta á Revit og Magicad er mikill kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta er skilyrði
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu af hönnun.
  • Gott vald á íslensku og ensku

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áreiðanleiki, metnaður og skipulögð vinnubrögð
  • Frumkvæði og fagmennska
  • Sjálfstæð vinnubrögð og útsjónarsemi
  • Nákvæmni og góð greiningarhæfni

Um er að ræða krefjandi en jafnframt spennandi starf og tækifæri fyrir metnaðarfullan sérfræðing. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Hafsteinsson, framkvæmdastjóri, sími 897-5363.

Öll eru eru hvött til að sækja um starfið.

Menntunar- og hæfniskröfur
Byggingaverk- eða tæknifræðingur
Auglýsing birt30. desember 2021
Umsóknarfrestur16. janúar 2022
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Síðumúli 3, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AutoCADPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.TæknifræðingurPathCreated with Sketch.Verkfræðingur
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar