Verksýn
Verksýn

Byggingafræðingur/Byggingartæknifræðingur

Verksýn óskar eftir að ráða öflugan og drífandi einstakling í starf byggingafræðings/byggingartæknifræðings, til að sinna fjölbreyttum verkefnum fyrirtækisins.

Helstu verkefni og ábyrgð:

· Ástandsgreiningar á mannvirkjum og hönnun endurbóta

· Umsjón með verk- og kostnaðaráætlunum ásamt kostnaðareftirliti

· Gerð útboðs- og verklýsinga

· Verkefnastjórnun, undirbúningur og skipulag

· Almenn framkvæmdaráðgjöf og eftirlit

· Samskipti við verkkaupa, verktaka og aðra hagsmunaaðila

Menntunar- og hæfniskröfur:

· Menntun á sviði bygginga- eða tæknifræði

· Aðilar með skylda menntun, s.s. iðnfræði, arkitektúr, verkfræði eða reynslumiklir iðnmeistarar koma einnig til greina

· Reynsla af verkefnastjórnun á sviði framkvæmda er kostur

· Sjálfstæð vinnubrögð og skipulagshæfni

· Jákvætt viðmót og framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði

Um Verksýn:

Verksýn var stofnað árið 2006 og hefur síðan þá veitt sérhæfða ráðgjöf vegna viðhalds og endurbóta á mannvirkjum. Fyrirtækið vinnur einnig að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf í tengslum við nýframkvæmdir.

Markmið Verksýnar er að mæta þörfum viðskiptavina sinna á sem besta mögulegan hátt, stuðla að auknum gæðum húsnæðis á Íslandi og safna og miðla af þekkingu á viðhaldi og endurbótum fasteigna.

Verksýn er fjölskylduvænn vinnustaður þar sem starfar þéttur hópur reynslumikilla sérfræðinga í góðu vinnuumhverfi.

Umsóknarfrestur er til og með 4. mars 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar um starfið veita Sigríður Svava Sandholt ([email protected]) og Lea Kristín Guðmundsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt18. febrúar 2025
Umsóknarfrestur4. mars 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Síðumúli 1, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar