

Bakendaforritari
Við hjá Reon leitumst nú eftir að bæta við bakendaforriturum í teymin okkar.
Teymi Reon vinna að krefjandi og skemmtilegum hugbúnaðarverkefnum fyrir mörg af stærstu fyrirtækjum landsins m.a. Krónuna, N1, Elko, Vörð, Nespresso ásamt því að vera með tvær spennandi vörur í þróun innanhúss.
Viðkomandi þarf að geta starfað í fjölbreytilegu umhverfi, sem felur m.a. í sér að eiga auðvelt með að vinna með öðrum og geta tileinkað sér nýja tækni og aðferðir til að komast að bestu mögulegu lausn hverju sinni fyrir notendur og hagsmunaaðila.
Reon hefur verið valið fyrirtæki ársins af VR undanfarin tvö ár. Við leggjum áherslu á jákvætt og lifandi starfsumhverfi, skemmtileg verkefni og samvinnu.
Ef þetta er eitthvað sem heillar, endilega sæktu um og tökum spjallið.











