
Íslandsbanki
Íslandsbanki er alhliða banki með langa og sterka sögu sem nær aftur til ársins 1875. Við vinnum daglega að því að mæta fjölbreyttum þörfum viðskiptavina okkar með traustum rekstri, fagmennsku og mannlegri nálgun. Hlutverk okkar er að vera hreyfiafl til góðra verka, þannig að viðskiptavinir okkar geti náð árangri til lengri tíma.
Með skýra framtíðarsýn um að vera #1 í þjónustu vinna þrjár viðskiptaeiningar bankans náið saman að því markmiði að byggja og viðhalda sterkum, sjálfbærum viðskiptasamböndum.
Mannauðsstefna Íslandsbanka byggir á þeirri framtíðarsýn að vera besti vinnustaðurinn til að vaxa og þróast. Við leggjum áherslu á faglegt ráðningarferli, öfluga móttöku nýliða, fræðslu og starfsþróun, auk heilsu, vellíðanar og jafnvægis milli vinnu og einkalífs. Jafnrétti, fjölbreytni og mannréttindi eru grundvallaratriði í allri okkar starfsemi
Hjá Íslandsbanka starfa um 750 manns sem deila ástríðu fyrir árangri og vinna að lausnum fyrir viðskiptavini af metnaði, framsækni og fagmennsku. Við leggjum ríka áherslu á að skapa virði til framtíðar með framúrskarandi þjónustu, samvinnu og ábyrgri starfsemi.

Bakendaforritari
Í Hugbúnaðarlausnum Íslandsbanka starfar samhentur hópur sérfræðinga eftir viðurkenndum aðferðafræðum við hugbúnaðarþróun. Við myndum sterka liðsheild sem tekst á við krefjandi áskoranir og vinnum þétt með hagsmunaaðilum okkar innan sem utan bankans.
Leitað er að forritara sem hefur ástríðu fyrir úrlausn flókinna verkefna og uppbyggingu úthugsaðra bakendalausna.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða sambærileg menntun
Reynsla af þróun í .NET Core og C#
Reynsla af notkun GIT
Þekking og reynsla af MS SQL
Reynsla af Angular, Kubernetes, Docker og/eða OAuth er kostur
Þekking og reynsla af Agile aðferðarfræði er kostur
Þekking og reynsla í útlánalausnum er kostur
Lipurð í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og drifkraftur
Fagleg vinnubrögð
Helstu verkefni og ábyrgð
Þátttaka í útlánateymi og samvinna við viðskiptaeiningar
Forritun á bakendum útlánalausna bankans
Fylgja gæðastöðlum og gæðamarkmiðum
Önnur verkefni eftir samkomulagi
Auglýsing birt8. apríl 2021
Umsóknarfrestur25. apríl 2021
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Hagasmári 3, 201 Kópavogur
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Senior QA Analyst
Fenris Creations

Software Engineer
Treble Technologies

Data Engineer
atNorth

Sérfræðingur í innri endurskoðun
Landsbankinn

SnerpaPower - Sérfræðingur í skýjalausnum
SnerpaPower

Sérfræðingur í rekstri stjórn- og varnarbúnaðar
Landsnet hf.

Microsoft sérfræðingur
Advania

Sérfræðingur í upplýsingatækni
Lagerinn Iceland ehf.

Notendaþjónusta í UT
Hagvangur

Ert þú lausnamiðaður sérfræðingur í upplýsingatækni?
Sómi

Sérfræðingur í upplýsingaöryggi
Landsbankinn

Sérfræðingur í Vélbúnaðarþjónustu
Landsbankinn