
Evolv
Evolv er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og smíði á sjálfvirkum lausnum. Hjá Evolv er notast við ýmsa tækni þegar kemur að smíði sjálfvirkra lausna, þar á meðal er Evolv með mikla sérþekkingu á sviði stafræns vinnuafls (e. Robotic Process Automation).

Automation developer
Við hjá Evolv leitum að starfskrafti sem er tilbúinn að ganga til liðs við okkar frábæra teymi sem hjálpar stærstu fyrirtækjum landsins að sjálfvirknivæða handvirka og tímafreka ferla. Starfið felst meðal annars í því að greina, smíða og innleiða hugbúnaðarlausnir sem nýtast viðskiptavinum Evolv í sinni sjálfvirknivegferð.
Evolv býður viðskiptavinum sínum upp á framúrskarandi þjónustu sem byggir á trausti, fagmennsku og skilningi á virði þeirra sjálfvirknilausna sem Evolv þróar í samvinnu við viðskiptavini.
Drífandi einstaklingar í leit að starfi sem býður upp á fjölbreytt verkefni, ábyrgð og tækifæri til að hafa áhrif á hverjum degi eru hvattir til að sækja um. Ef eftirfarandi á við um þig þá skaltu sækja um
- Hef áhuga á því að fá innsýn inn í fjölbreyttan rekstur fyrirtækja á Íslandi
- Vil fá tækifæri til þess að leysa vandamál frá upphafi til enda
- Vil fá tækifæri til þess að taka ábyrgð og sýna frumkvæði af alvöru
- Hef brennandi áhuga á að sjálfvirknivæða handvirka ferla og tek ekki "þetta hefur bara alltaf verið gert svona" sem gildri ástæðu fyrir því að gera eitthvað.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við fjölbreytta viðskiptavini Evolv
- Ráðgjöf og þjónusta við að sjálfvirknivæða handvirka og tímafreka ferla.
- Taka þátt í að þróa, útfæra, forrita og prófa sjálfvirkar lausnir
- Aðstoð og þjónusta við viðskiptavini Evolv við innleiðingu á sjálfvirkum lausnum.
- Vera hluti af framúrskarandi teymi Evolv og leggja þitt af mörkum við spennandi verkefni sem leggja áherslu á nána teymisvinnu.
- Vera forvitinn í starfi, sífellt að leitast við að auka færni þína og þekkingu og fylgjast með þróun og tækninýjungum á þínu sviði
- Finna bestu lausn við vandamálum ekki einungis auðveldustu
Menntunar- og hæfniskröfur
- Þekking og reynsla af UiPath eða öðrum RPA tólum er kostur.
- Þekking á vefþjónustum og API samþættingum er kostur.
- Góður bakgrunnur í forritun, til dæmis í Python og SQL.
- Ánægja af því að vinna í hóp og löngun til að taka þátt í öflugri teymisvinnu.
- Metnaður fyrir því að skila frá sér virði til viðskiptavina.
- Frumkvæði og ábyrgð til þess að keyra verkefni af stað og fylgja þeim eftir.
- Ánægja af því að leysa vandamál og finna bestu leiðina til þess.
- Gagnrýnin hugsun og metnaður fyrir því að gera hlutina betur, ekki gera hlutina á einhvern ákveðinn hátt vegna þess að þeir hafa alltaf verið gerðir þannig.
- Samskiptahæfni sem nýtast til þjónustu við viðskiptavini, sama hvort það sé til þess að greina tækifæri, innleiða lausnir eða veita notendaaðstoð.
Fríðindi í starfi
- Tækifæri til að vaxa í starfi og vera partur af framúrskarandi teymi spennandi hugbúnaðarfyrirtækis í miklum vexti
- Hádegismatur, drykkir o.fl. á skrifstofu
- Íþróttastyrkur
Auglýsing birt8. janúar 2024
Umsóknarfrestur19. febrúar 2024
Tungumálahæfni
Engar sérstakar tungumálakröfur
Staðsetning
Bjargargata 1, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
Almenn tæknikunnáttaFljót/ur að læraFrumkvæðiGagnagreiningHeiðarleikiHönnun ferlaHreint sakavottorðHugmyndaauðgiInnleiðing ferlaJákvæðniMetnaðurNýjungagirniPythonSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagSQLStundvísiTeymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Liðsfélagi í markaðs- og framleiðsludeild
Iðan fræðslusetur

Sérfræðingur við vega-, gatna- og stígahönnun
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Efnaverkfræðingur á sviði umhverfisráðgjafar
VSÓ Ráðgjöf ehf.

Sérfræðingur á sviði náttúruvár með áherslu á ofanflóð og jarðvá
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Physics modelling of thermodynamics and heat transfer
Hydram Dynamics

Software engineer
Rivvo

Taktu forystu í kerfinu sem bjargar mannslífum!
Alda Öryggi ehf.

Verkefnastjóri viðskiptakerfa
Advania

Verkefnastjóri í framkvæmdadeild
Yrkir eignir ehf.

Forstöðumaður umferðardeildar
Vegagerðin

Verkefnastjóri – stefna og fjárfestingar
Landsnet hf.

Áreiðanleikafræðingur
Norðurál