Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins

Almennur læknir - Heilsugæslan Efra-Breiðholt

Heilsugæslan Efra-Breiðholti óskar eftir að ráða almennan lækni. Um er að ræða 100% starf en möguleiki er á minna starfshlutfalli. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir nánari samkomulagi. Um er að ræða spennandi vettvang fyrir lækni sem hefur áhuga á að kynnast heimilislækningum og starfið getur verið góður undirbúningur undir sérnám í heimilislækningum.

Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í heimilislækningum ásamt hjúkrunarfræðingum, sálfræðingum, ljósmæðrum, félagsráðgjafa, sjúkraliða, hreyfistjóra, klínískum lyfjafræðingi og riturum. Heilsugæslan Efra Breiðholti þjónar fyrst og fremst íbúum Efra-Breiðholts en öllum er frjálst að skrá sig á stöðina. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga.

Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfsvið læknis felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd og opinni móttöku ásamt þátttöku í teymisvinnu samstarfsfólks. Viðkomandi býðst einnig að taka þátt í faglegri þróun og mótun verklags.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskt lækningaleyfi
  • Skipulagshlæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum
  • Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Íslenskukunnátta skilyrði.
  • Hreint sakavottorð
Auglýsing birt21. október 2024
Umsóknarfrestur4. nóvember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenskaMjög góð
Staðsetning
Hraunberg 6, 111 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LæknirPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar