Mynstra
Mynstra
Mynstra

AI-first Hugbúnaðarverkfræðingur

Mynstra er ráðgjafarfyrirtæki sem hjálpar fyrirtækjum að nýta gervigreind í rekstri. Við vinnum á mörkum hugbúnaðarþróunar, sjálfvirkni, gagnavinnslu og ráðgjafar og leitum nú að öflugum hugbúnaðarverkfræðingi sem hefur tileinkað sér notkun gervigreindar í sínu starfi.

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í litlu teymi þar sem þú munt hafa mikil áhrif á lausnir, vinnubrögð og uppbyggingu fyrirtækisins. Starfið hentar manneskju sem hefur sterkan faglegan grunn, vinnur sjálfstætt og hefur tileinkað sér notkun gervigreindartóla (t.d. Codex, Claude Code) sem órjúfanlegan hluta af sinni nálgun við hugbúnaðargerð.

Umsóknir verða meðhöndlaðar jafnóðum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Þróun hugbúnaðarlausna og frumgerða fyrir viðskiptavini og innri verkefni
  • Hönnun á arkitektúr hugbúnaðarkerfa, sjálfvirknilausna og gagnatenginga
  • Þátttaka í uppbyggingu eigin vara og þjónustu Mynstru
  • Samvinna við viðskiptavini og teymi við að útfæra tæknilegar lausnir hratt og vel
  • Nýting gervigreindarverkfæra í þróunarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Hefur lokið háskólamenntun (BSc eða MSc) í hugbúnaðarverkfræði eða tölvunarfræði
  • Hefur starfsreynslu af hönnun og þróun á skalanlegum hugbúnaðarkerfum frá grunni 
  • Getur unnið sjálfstætt, skipulagt sig vel og klárað hluti
  • Hefur tileinkað sér „AI-first“ verklag í allri hugbúnaðargerð og treystir á gervigreind til að margfalda afköst sín
  • Notar verkfæri á borð við Claude Code, Codex eða sambærileg gervigreindartól sem grundvallaratriði í allri sinni vinnu
  • Hefur góða þekkingu á eða getur auðveldlega unnið með tæknistafla Mynstru, sem byggir m.a. á Python, Next.js og Postgres
  • Hefur góða samskiptahæfni og getur unnið í nánu samstarfi við aðra
Fríðindi í starfi
  • Mótun metnaðarfulls fyrirtækis á sviði gervigreindar
  • Fjölbreytt verkefni og mikið svigrúm til áhrifa
  • Nútímaleg vinnubrögð með nýjustu tækni og verkfæri í hugbúnaðargerð
  • Sveigjanlegt vinnuumhverfi og náið samstarf við stofnanda
Auglýsing birt6. apríl 2026
Umsóknarfrestur20. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lækjargata 6, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Gervigreind
Starfsgreinar
Starfsmerkingar