Kvikna medical
Kvikna medical

Netöryggisstjóri (Cypersecurity Manager)

Kvikna Medical óskar eftir að ráða metnaðarfullan og tæknilega sterkan einstakling með áhuga á gæða- og öryggismálum til að hafa umsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun fyrirtækisins. Starfið gæti hentað einstaklingum með bakgrunn í hugbúnaðargerð sem vilja þróa sig frekar í öryggis- og gæðamálum. Eins gæti starfið hentað einstaklingum sem hafa reynslu af innleiðingu ISO 27001 og hafa tæknilegan bakgrunn.

Helstu verkefni og ábyrgð:

Umsjón með öryggismálum í hugbúnaðarþróun

Tryggja samræmi við staðla fyrir lækningatæki, m.a. IEC 81001-5-1 og AAMI SW96

Skjalfesting ferla í samvinnu við gæðastjóra

Samvinna við þróunarteymi um örugga hönnun

Menntunar- og hæfniskröfur:

Háskólamenntun sem nýtist í starfi, s.s. verkfræði eða tölvunarfræði.

Þekking á öryggismálum í hugbúnaðarþróun (Cybersecurity)

Reynsla af þróunarferli hugbúnaðar er kostur

Reynsla af ISO 27001 er kostur

Góð færni í íslensku og ensku í ræðu og riti

Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð

Um Kvikna Medical ehf.
Kvikna Medical ehf. vinnur að þróun og sölu á hugbúnaði og vélbúnaði fyrir heilalínurit (EEG) og eru viðskiptavinir fyrirtækisins um allan heim. Kvikna var fyrst fyrirtækja til að bjóða upp á skýjalausn fyrir heilalínurit og er enn í fararbroddi á alþjóðlegum markaði. Frekari upplýsingar um Kvikna Medical ehf. má finna: About Stratus | Kvikna Medical

Umsóknarfrestur er til og með 12. apríl 2026 en unnið er úr umsóknum um leið og þær berast. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Nánari upplýsingar veita Þuríður Pétursdóttir ([email protected]) og Lea Kristín Guðmunsdóttir ([email protected]) í síma 511-1225.

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur12. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Lyngháls 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar