Gildi
Gildi

Forritari

Gildi leitar að metnaðarfullum og öflugum forritara sem vill taka þátt í spennandi umbreytingarferð á stafrænu umhverfi sjóðsins. Framundan er umfangsmikil uppbygging tækniinnviða, þar á meðal endurhönnun vefja, þróun nýs vefþjónustulags og mótun nútímalegs tæknilegs arkitektúrs.

Markmiðið er að efla þjónustu, bæta gagnasamhæfingu og styrkja samskipti við sjóðsfélaga og aðra hagaðila. Starfsmaður heyrir undir forstöðumann upplýsingatæknisviðs og mun vinna í nánu samstarfi við aðrar einingar sjóðsins við þróun stafrænnar þjónustu.

Hér gefst einstakt tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif á framtíð stafrænnar þjónustu og veflausna sjóðsins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Samþætting innri og ytri kerfa og tryggja áreiðanlega gagnamiðlun og samskipti.
  • Þátttaka í innleiðingu nýrra lausna og stöðugum umbótum á stafrænum ferlum.
  • Þátttaka í hönnun og uppbyggingu nýrra þjónustuinnviða og mótun tæknilegs arkitektúrs.
  • Hanna og þróa vefi og framenda sjóðsins með áherslu á notendaupplifun og gæði.
  • Hanna bakenda sjóðsins með áherslu á skilvirkni, skalanleika og gæði.
  • Þróa og viðhalda vefforritum og þjónustum í C#, .NET og MS SQL.


Menntun og hæfniskröfur

  • Háskólapróf í tölvunarfræði, hugbúnaðarverkfræði eða sambærileg menntun.
  • Reynsla af framendaþróun og góð þekking á C#, .NET og MS SQL.
  • Reynsla af hönnun og þróun vefþjónusta (API) og uppbyggingu þjónustuviðmóta er kostur.
  • Góð þekking á JavaScript og reynsla af nýtímalegu framendaumhverfi, s.s. Vue.js er kostur.
  • Reynsla af samþættingu innri og ytri kerfa er kostur.
  • Þekking á Git / agile og skipulögðum vinnubrögðum í hugbúnaðarþróun.
  • Þekking eða reynsla af CMS-kerfum,t.d Wagtail er kostur.
  • Þekking eða reynsla af PowerApps er kostur.
  • Góður skilningur á arkitektúr, gæðum kóða og góðum starfsháttum í hugbúnaðarþróun.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og vilji til að hafa leiðandi áhrif á tæknilega þróun.
  • Góð samskiptahæfni og jákvætt viðmót.
  • Góð íslensku og enskukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.


Gildi er einn af stærstu lífeyrissjóðum landsins með um 60 þúsund greiðandi sjóðfélaga og um 33 þúsund sjóðfélaga sem fá greiddan lífeyri frá sjóðnum. Um 285 þúsund einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum. Eignir Gildis nema yfir 1.200 milljörðum króna og sjóðurinn gegnir leiðandi hlutverki á íslenskum fjármálamarkaði.

Hjá Gildi starfar metnaðarfullt og samhent teymi sem leggur áherslu á fagmennsku, ábyrgð og stöðugar umbætur. Við bjóðum krefjandi verkefni, gott starfsumhverfi og raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif á þróun stafrænnar þjónustu trausts lífeyrissjóðs.


Umsóknarfrestur um starfið er til og með 7. apríl 2026.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu.

Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarnadóttir ([email protected]) og Garðar Óli Ágústsson ([email protected]) hjá Vinnvinn.

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Guðrúnartún 1, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar