
Kvikna Medical ehf.
Kvikna Medical vinnur að sölu og þróun á búnaði fyrir heilalínurit (EEG) og eru viðskiptavinir okkar staðsettir um allan heim.
Verkefni okkar eru aðallega þróun á hugbúnaði og vélbúnaði, ásamt markaðs og reglugerðarmálum.
Varan okkar, StratusEEG™ hefur verið á markaði síðan 2013 og var fyrsta lausnin á markaðinum sem byggir á skýjalausn fyrir heilalínurit.
Fyrirtækið er lækningatækjaframleiðandi og vinnur eftir gæðakerfi í samræmi við það (ISO 13485).

Prófari (QA Tester)
Kvikna Medical þróar og selur hugbúnað og vélbúnað fyrir heilalínurit (EEG). Vörur okkar eru notaðar á sjúkrahúsum víða um heim við greiningu á flogaveiki og öðrum taugasjúkdómum. Við leitum að tæknilega sinnuðum, útsjónarsömum og nákvæmum einstaklingi í starf prófara. Sem prófari tryggir þú að vörurnar uppfylli strangar kröfur áður en þær fara í notkun.
Hjá fyrirtækinu starfa um 15 manns á Íslandi og felur starfið í sér náið samstarf við prófunarstjóra og þróunarteymi, auk samstarfsfólks í Evrópu og Bandaríkjunum. Um er að ræða skemmtilegt og krefjandi starf á sviði lækningatækja í alþjóðlegu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Prófanir: Framkvæma og skrásetja prófanir á hugbúnaði og vélbúnaði samkvæmt prófunaráætlunum (e. integration, functional tests)
- Frávikavinnsla: Finna, skrá og fylgja eftir villum og frávikum (e. issues), og staðfesta lagfæringar og nýja virkni. Vinna í teymi að lausnum og úrbótum.
- Skjalagerð: Sjá til þess að niðurstöður prófana séu vel skráðar og aðgengilegar teyminu.
- Samskipti við notendur: Aðstoða við að rannsaka og leysa vandamál tilkynnt af viðskiptavinum, greina mögulegar orsakir og svara notendum (eftir því sem við á).
- Stöðug framþróun: Koma með tillögur að umbótum á prófunarferli, aðferðum og verkferlum til að auka skilvirkni og gæði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólagráða í verkfræði (t.d. heilbrigðisverkfræði eða rafmagnsverkfræði), tæknifræði, tölvunarfræði eða sambærilegri grein.
- Gott tæknilæsi, tölvukunnátta og almenn þekking á þróun hugbúnaðar og vélbúnaðar.
- Mjög góð enskukunnátta.
- Áhugi og geta til að nýta gervigreind á markvissan hátt í starfi.
- Vandvirkni, skipulagshæfni og geta til að vinna eftir gæðakerfi.
- Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu.
- Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu.
- Grunnþekking á rafmagnsfræði og merkjavinnslu er kostur.
- Grunnkunnátta í forritun eða SQL er kostur.
- Reynsla af prófunum í gæðaumhverfi, t.d. ISO 13485 er kostur.
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur17. desember 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Lyngháls 9, 110 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (12)

Sérfræðingur
Orkubú Vestfjarða ohf

Finance Solutions Manager
Icelandair

Sérfræðingur í hugbúnaðarþróun með áherslu á gervigreind
Seðlabanki Íslands

QA Senior Specialist - Quality Events & Product Quality
Alvotech hf

Enterprise AI Architect
Icelandair

Cyber Security Operations Specialist
Advania

Atlassian Platform Specialist
atNorth

DevOps sérfræðingur í hýsingarteymi
dk hugbúnaður ehf.

Ráðgjafi viðskiptakerfa
Advania

Hugbúnaðarsérfræðingur
Keflavíkurflugvöllur | Isavia

QA Lead
Origo ehf.

Technical Scrum Master/Project Manager
atNorth