Reykjavíkurborg
Reykjavíkurborg

Sumarstarf hjá stafrænni Reykjavík

Leitað er að metnaðarfullum sumarstarfsmanni sem hefur áhuga á stafrænum lausnum, sjálfvirknivæðingu og nútímalegu samstarfsumhverfi. Starfið felur í sér þátttöku í þróun, uppsetningu og umbótum á lausnum sem byggja á Power Platform, Copilot og SharePoint innan Microsoft 365 umhverfis.

Sumarstarfsmaðurinn mun vinna í nánu samstarfi við vörustjóra og sérfræðinga í stafrænum lausnum og fá tækifæri til að kynnast raunverulegum verkefnum sem snúa að þjónustu, ferlum og stafrænum umbreytingum.

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem sumarstarfsmaður hjá stafrænni Reykjavík munt þú...

  • Aðstoða við uppsetningu og þróun lausna í Power Platform - Power Apps, Power Automate flæði, SharePoint listar/gagnagrunnar og Copilot
  • Taka þátt í skipulagi og umbótum á SharePoint svæðum, uppbygging efnis, lista upp og einfalda ferla, aðstoða við stöðlun og notendavæna framsetningu
  • Greina og skrá þarfir notenda í samvinnu við vörustjóra
  • Aðstoða við prófanir, skjölun og einfaldar leiðbeiningar fyrir notendur
  • Taka þátt í minni þróunar- eða umbótaverkefnum frá upphafi til loka
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf
  • Að stunda nám í tölvunarfræði eða upplýsingatækni er kostur
  • Metnaður, forvitni og vilji til að læra og þróast
  • Reynsla eða ástríða fyrir upplýsingatækni
  • Framúrskarandi samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð
  • Reynsla að halda utan um verkefni er kostur
  • Mikill áhugi á notendaupplifun og greiningum eða kortlagningu á þjónustu
  • Reynsla af Power Apps, Power Automate eða SharePoint
  • Áhugi á sjálfvirknivæðingu, ferlahönnun eða þjónustuhönnun og tækifærum í nýtingu á Atlassian, Microsoft, Ui path og fleiri lausnum
  • Góð geta til að tjá sig í riti og ræðu á íslensku og ensku
Fríðindi í starfi

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er fyrsta flokks vinnustaður þar sem góð liðsheild og virðing einkennir menninguna. Við leggjum mikið upp úr faglegu umhverfi þar sem frumkvæði og þori er fagnað. Verkefnin eru krefjandi og skemmtileg og enn betra er að þau stuðla að því að einfalda og bæta líf borgarbúa og starfsfólks borgarinnar.

Þjónustu- og nýsköpunarsvið er regnbogavottaður vinnustaður. Markmið með regnbogavottun Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi Reykjavíkurborgar hinseginvænni, bæði fyrir starfsfólk og þjónustuþega og einnig koma í veg fyrir beina og óbeina mismunun í garð hinsegin fólks. Á dögunum vann þjónustu og nýsköpunarsvið til UT-verðlaun Ský 2025 í flokknum stafræn opinber þjónusta.

Við bjóðum upp á

  • Fyrsta flokks vinnustað
  • Öfluga nýliðamóttöku
  • Sálrænt öryggi og skapandi menningu
  • Góða liðsheild og góð samskipti
  • Samkennd og virðingu
  • Þekkingarumhverfi
  • Áherslu á jafnrétti og fjölbreytileika
  • Jafnvægi milli vinnu og einkalífs
  • Heilsueflandi vinnustað
  • Gott vinnuumhverfi
  • Fyrsta flokks vinnuaðstöðu

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til 7. apríl n.k. Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigrún Lára Sverrisdóttir deildarstjóri vörustýringar hjá stafrænni Reykjavík í gegnum tölvupóstfangið: [email protected]

Auglýsing birt20. mars 2026
Umsóknarfrestur7. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Borgartún 12-14, 105 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar