Afgreiðslu og sölufulltrúi í Reykjavík
Við leitum að söludrifnum og jákvæðum einstaklingi í krefjandi og skemmtilegt starf sölu- og afgreiðslufulltrúa fyrirtækisins í Reykjavík. Um er að ræða 70-100% starf. Starfið felur í sér afgreiðslu á bílaleigubílum, sölu á viðbótarþjónustu, þjónustu við viðskiptavini á meðan á leigu stendur og móttöku bíla að lokinni leigu. Starfið er unnið á leigustöðvum fyrirtækisins í Reykjavík.
Unnið er samkvæmt 2-2-3 vaktakerfi frá kl. 08:00 - 17:00 á virkum dögum og 08:00 - 14:00 um helgar.
Ábyrgð og helstu verkefni:
• Sala á viðbótarþjónustu í framlínu
• Afhending og móttaka bílaleigubíla
• Gerð leigusamninga
• Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini
• Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina
Kröfur um menntun og hæfni:
• Brennandi áhugi fyrir sölu og góðri þjónustu
• Góð tölvuþekking
• Góð íslensku- og ensku kunnátta skilyrði, önnur tungumálakunnátta kostur
• Menningarlæsi, sjálfstæði, frumkvæði, samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki
• Framúrskarandi færni í mannlegum samskiptum
• Hreint sakavottorð
• Bílpróf er skilyrði
Umsóknum skal skilað inn í formi ferilskrár og kynningarbréfs í gegnum Alfreð.
Umsóknarfrestur er til 23.04.2024. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.
- Sala á viðbótarþjónustu í framlínu
- Afhending og móttaka bílaleigubíla
- Gerð leigusamninga
- Sala til erlendra og innlendra viðskiptavina
- Samskipti við erlenda og innlenda viðskiptavini
- Góð tölvuþekking
- Hreint sakavottorð
- Ökuréttindi
- Brennandi áhugi fyrir sölu og góðri þjónustu