Sölu- og þjónustufulltrúi – Kaffiþjónusta Innnes
Ertu jákvæð/ur, öflug/ur og með góða þjónustulund? Kaffiþjónusta Innnes leitar að öflugri manneskju til að slást í hópinn!
Innnes er eitt stærsta innflutningsfyrirtæki landsins í matvöru og víni og leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini sína með gildin gleði og fagmennsku að leiðarljósi.
Hvað felst í starfinu?
- Þjónusta fyrirtæki og stofnanir í tengslum við þjónustusamninga fyrir kaffi- og vatnsvélar.
- Heimsóknir til viðskiptavina með vörur og afgreiðsla þeirra beint úr sendibíl.
- Uppbygging góðra viðskiptasambanda með framúrskarandi þjónustu.
Við leitum að einstaklingi sem hefur:
- Jákvætt viðmót og sterka þjónustulund.
- Hæfni til að vinna sjálfstætt og skipulega.
- Góða samskiptafærni og metnað til að ná árangri.
Hvaða hæfniskröfu þarft þú að hafa:
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
- Íslenskukunnátta (skilyrði)
- Ökuréttindi (skilyrði).
- Stundvísi
Hvað bjóðum við?
- Starf á reyklausum vinnustað með jafnlaunakerfi.
- Skemmtilegt og hvetjandi starfsumhverfi á höfuðborgarsvæðinu.
- Tækifæri til að vinna með þekkt vörumerki og framúrskarandi þjónustu.
Vinnutími er mánudaga - fimmtudaga 8:00 - 16:00 og föstudaga 8:00 - 15:15.
Innnes hvetur alla, óháð kyni, til að sækja um.
Umsóknir:
Eingöngu er tekið við umsóknum á vefsíðu Innnes. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá með mynd (CV) á MS Word eða PDF formi og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir færni í starfið og ástæðu umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 6.febrúar 2025.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Björn Ingvar Guðbergsson liðstjóri kaffiþjónustu Innnes í tölvupósti [email protected]
Sótt er um starfið á https://jobs.50skills.com/innnes/is
Hlökkum til að heyra frá þér!