Óskum eftir sölu- og þjónustufulltrúa!
Hæ!
Við leitum að öflugum sölu- og þjónustufulltrúa í verslun Hringdu. Um er að ræða 100% starf og er aldurstakmark 20 ár.
Starfið
Í starfinu felst að aðstoða viðskiptavini Hringdu með allt sem tengist okkar vörum og þjónustu, á mannamáli. Þú ert andlit fyrirtækisins, geislar af jákvæðni, hugsar í lausnum, elskar mannleg samskipti og vilt umfram allt veita frábæra þjónustu!
Hvað ertu að fara gera?
- Afgreiða pantanir og breytingar í síma, verslun og á netinu
- Aðstoða viðskiptavini með reikninga og einföld tæknileg mál
- Eiga samskipti við okkar helstu birgja
- Tækla ýmis önnur verkefni sem koma upp á
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf, reynsla sem nýtist eða mikill áhugi á starfinu!
- Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Góðir samskiptahæfileikar og mikil þjónustulund
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Ef þér líst vel á okkur og starfið hvetjum við þig til að sækja um!
Um Hringdu
Hringdu er lítið en ört vaxandi fjarskiptafyrirtæki þar sem hæfileikaríkir einstaklingar geta unnið sig upp í starfi. Hér vinna fáar hendur mörg og mismunandi verk og er því starfið fjölbreytt, reynslumikið og ríkt af ábyrgð. Við fáum sendan mat í vinnuna fimm daga vikunnar en drögum fram grillið við góð tækifæri. Starfsmannafélagið Svaraðu sér fyrir góðu skemmtanalífi og hér elska allir kaffi, ketti/hunda & foosball.
Hringdu hefur hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndafyrirtæki VR árin 2017, 2018, 2019 og 2023 og sem Fyrirtæki ársins 2020, 2021, 2022, 2023 og 2024.
Ánægðustu viðskiptavinir í net- og símaþjónustu eru hjá Hringdu 2019-2024 samkvæmt Meðmælingu Maskínu.
- 7 tíma vinnudagur
- Aðgangur að Hopp hjólum
- Nudd á vinnutíma
- Símtækjastyrkur
- Net- og símaáskrift
- Líkamsræktarstyrkur