

Aðstoðarmaður sérfræðinga í barnavernd
Aðstoðarmaður sérfræðinga vinnur að samantektum í barnaverndarmálum sem eru í vinnslu. Hann skipuleggur skjöl sem tilheyra einstökum málum, fer yfir skjalamöppur, aðstoðar við vinnslu barnaverndarmála með aðkomu að skipulagi gagna og skráningu, vinnur tölfræðiupplýsingar varðandi þætti innan barnaverndar og vinnur úttektir á umsagnarmálum, fósturfjölskyldum, stuðningsfjölskyldum og umsögnum vegna ættleiðinga. Hann vinnur sjálfstætt að umsögnunum sem lagðar eru fyrir barnaverndarnefnd. Hann skrifar greinargerðir vegna umsókna um stuðningsfjölskyldur. Hann vinnur einnig að öðrum verkefnum innan barnaverndar.
Um er að ræða tímabundið sumarstarf / átaksverkefni í 2 mánuði á tímabilinu 1. júní – 31. ágúst. Skilyrði er að umsækjendur séu 18 ára á árinu eða eldri og í námi á milli anna. Ráðningartímabilið er frá 15. júní til 15. ágúst.











