Húnabyggð
Húnabyggð

Starfsmaður í ráðgjöf á velferðarsviði Húnabyggðar

Vilt þú taka þátt í að efla velferðarþjónustu og stuðla að auknum lífsgæðum einstaklinga og fjölskyldna?

Húnabyggð leitar að metnaðarfullum, jákvæðum og lausnamiðuðum ráðgjafa til starfa á sviði velferðarþjónustu til eins árs.

Um er að ræða 100% stöðu við ráðgjöf í málefnum eldra fólks, ráðgjöf við fjölskyldur fatlaðra barna og ungmenna og við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Starfið er laust frá 1. janúar 2027. Um er að ræða dagvinnustarf.

Húnabyggð er eitt þeirra sveitarfélaga sem standa að sameiginlegu þjónustusvæði fatlaðs fólks á Norðurlandi vestra. Skagafjörður fer með hlutverk leiðandi sveitarfélags og ber ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Önnur sveitarfélög sem koma að þjónustusvæðinu eru Skagaströnd og Húnaþing vestra. Húnabyggð sér einnig um vinnslu mála fyrir Skagaströnd.

Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða þjónustu, fagleg vinnubrögð, þverfaglegt samstarf, heildstæða og samþætta þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu hlutverk 

Helstu hlutverk eru utanumhald með stuðningsþjónustu sveitarfélagsins:  

Starfsmaður sér um að skipuleggja stuðningsþjónustu og heldur utan um starfsfólk stuðningsþjónustu.  

Persónuleg og félagsleg ráðgjöf: Aðstoð við að leysa úr málum sem tengjast daglegu lífi, réttindum, þjónustu og úrræðum. 

Samþætting þjónustu: Vinnur í samstarfi við aðra starfsmenn þjónustusvæðisins, aðrar stofnanir sveitarfélaganna og aðra aðila að því að tryggja að fatlaðir fullorðnir, fötluð börn og fjölskyldur þeirra fái samræmdan stuðning. Starfsmaður sér um málstjórn í samþættum málum og er þáttakandi og/eða stjórnandi í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. 

Stuðningur til sjálfstæðis: Aðstoð við búsetuþjónustu, atvinnuþátttöku, frístundir og félagslega virkni. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunarkröfur: 

  • Háskólamenntun í félagsráðgjöf, þroskaþjálfun, iðjuþjálfun eða önnur háskólamenntun sem nýtist í starfi. 
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur. 

Hæfniskröfur: 

  • Almenn ökuréttindi eru skilyrði. 
  • Farsæl reynsla af ráðgjöf, þjónustumati og störfum innan velferðarþjónustu er kostur. 
  • Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og ríka ábyrgðartilfinningu. 
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn til að tileinka sér nýja starfshætti og sýna jákvæðni og frumkvæði, hafa metnað í starfi og geta unnið sjálfstætt og skipulega. 
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti. 
  • Hreint sakavottorð. 
Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Húnabraut 5, 540 Blönduós
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar