Húnabyggð
Húnabyggð

Starfsmaður í barnavernd

Húnabyggð auglýsir eftir starfsmanni í 100% stöðu í barnavernd. Starfið er laust til ráðningar. Unnið er í dagvinnu en starfsmaður tekur reglulegar bakvaktir í barnavernd.

Húnabyggð er eitt þeirra sveitarfélaga sem standa að Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands. Skagafjörður er leiðandi sveitarfélag í Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands og ber ábyrgð á barnavernd í nánu samstarfi við aðildarsveitarfélögin. Önnur sveitarfélög sem koma að barnaverndarþjónustusvæðinu eru Skagaströnd og Húnaþing vestra. Húnabyggð sér einnig um vinnslu og eftirfylgni með barnaverndarmálum á Skagaströnd.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru meðferð og vinnsla barnaverndarmála og eftirfylgni þeirra. Lögð er áhersla á þverfaglegt samstarf, heildstæða og samþætta þjónustu. Málstjórn í samþættum málum er hluti af starfinu og stjórnun og/eða þátttaka í stuðningsteymum í þjónustu í þágu farsældar barna. Starfsmaður starfar náið með öðrum starfsmönnum Barnaverndarþjónustu Mið-Norðurlands, öðrum stofnunum sveitarfélaganna og sérfræðingum félagsþjónustu. 

Menntunar- og hæfniskröfur

Menntunarkröfur: 

  • Starfsréttindi í félagsráðgjöf eða önnur tengd háskólamenntun sem nýtist í starfi.  
  • Viðbótarmenntun sem nýtist í starfi er kostur. 

Hæfniskröfur: 

  • Almenn ökuréttindi eru skilyrði. 
  • Farsæl reynsla af starfi við barnavernd. 
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af ráðgjöf við einstaklinga og hópa sem eiga í félagslegum eða persónulegum vanda, ásamt því að hafa þekkingu á félagslegri þjónustu. 
  • Leitað er að einstaklingi með framúrskarandi samskiptahæfni og ríka ábyrgðartilfinningu. 
  • Umsækjandi þarf að vera tilbúinn til að tileinka ser nýja starfshætti og sýna jákvæðni og frumkvæði, hafa metnað í starfi og geta unnið sjálfstætt og skipulega. 
  • Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti. 
  • Hreint sakavottorð. 

 

Auglýsing birt16. nóvember 2026
Umsóknarfrestur29. nóvember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Húnabraut 5, 540 Blönduós
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar