Aðstoðarleikskólastjóri við leikskólann Yl, Mývatnssveit
Leikskólinn Ylur auglýsir stöðu aðstoðarleikskólastjóra. Um er að ræða gefandi og skemmtilegt stjórnunarstarf í góðu starfsumhverfi barna og fullorðinna. Tækifæri til faglegar starfsþróunar og þátttaka í þróun á starfinu. Leitað er að leikskólakennara með leiðtogahæfileika sem er tilbúinn að taka þátt í að leiða áfram metnaðarfullt og faglegt starf leikskólans.
Ylur er tveggja deilda leikskóli í Mývatnssveit en grunnskólinn, Reykjahlíðarskóli og leikskólinn Ylur eru samreknir. Í leikskólanum eru 22 börn á aldrinum 1 – 5 ára, en gert er ráð fyrir fleiri börn hefji dvöl við Yl á fyrstu mánuðum ársins. Ylur er grænfána- og heilsueflandi leikskóli sem leggur áherslu á heilsueflingu, vináttu, leik og útikennslu. Mikið og gott samstarf er á milli leik- og grunnskólans og íþróttamiðstöðvarinnar í Mývatnssveit.
Um er að ræða spennandi starf fyrir metnaðarfullan leikskólakennara. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni og lipurð í samskiptum, með góða þekkingu og reynslu af leikskólastarfi og hæfni til að veita faglega forystu
Faglegur leiðtogi og stuðningur við aðra starfsmenn leikskólans.
Vinna ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun auk skipulagningar kennslu- og uppeldisstarfsins.
Staðgengill leikskólastjóra í fjarveru hans.
Sinnir starfi deildarstjóra á annari deild leikskólans.
Virkur þátttakandi í mótun stefnu leikskólans og áætlunargerð með skólastjóra.
Samskipti og samvinna við foreldra.
Sinna öðrum þeim verkefnum sem skólastjóri felur honum.
Kennaramenntun og leyfisbréf til kennslu.
Góð reynsla af starfi í leikskóla
Reynsla af stjórnun æskileg.
Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
Mjög góð hæfni og lipurð í samskiptum.
Sjálfstæði og frumkvæði.
Góð íslenskukunnátta - í rituðu og töluðu máli