Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ
Hofsstaðaskóli Garðabæ

Umsjónarkennari í Hofsstaðaskóla

Hofsstaðaskóli auglýsir eftir umsjónarkennara á miðstigi á vorönn 2025. Í skólanum eru 480 nemendur í 1. - 7. bekk og starfsfólk um 90 talsins með það að markmiði að hlúa að nemendum námslega og félagslega og koma til móts við áhuga þeirra og getu. Vel er búið að nemendum og starfsfólki og er öll aðstaða í skólanum til fyrirmyndar.

Í Hofsstaðaskóla fer fram metnaðarfullt starf sem er í stöðugri þróun. Kennsluhættir eru fjölbreyttir og vellíðan nemenda í fyrirrúmi í anda Menntastefnu Garðabæjar. Læsi og leiðsagnarnám skipa stóran sess og þjónusta við nemendur með sérþarfir er öflug. Nánari upplýsingar um skólann má finna á vefsíðunni www.hofsstadaskoli.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir kennslu og hefur umsjón með nemendahópi
  • Skipuleggur nám og kennslu nemenda
  • Fylgist með námi og þroska allra nemenda sinna og leitast við að skapa kennsluaðstæður sem eru hvetjandi til náms, vinnusemi og þroska
  • Stuðlar að velferð nemenda í samstarfi við foreldra og fagfólk
  • Tekur þátt í teymisvinnu með umsjónarkennurum í árgangi ásamt öðrum fagaðilum sem koma að nemendum
  • Vinnur að þróun skólastarfs í samráði við stjórnendur og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)*
  • Að lágmarki 90 námseiningar á einu námssviði aðalnámskrár og menntunarfræði grunnskóla
  • Íslenskukunnátta á stigi C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Leikni í fjölbreyttum kennsluháttum æskileg
  • Farsæl reynsla af kennslu í grunnskóla eða starfi með börnum æskileg
  • Reynsla af Leiðsagnarnámi æskileg
  • Lipurð í samskiptum ásamt metnaði í starfi
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, stundvísi og samviskusemi
  • Ánægja af starfi með börnum og ungmennum
  • Þekking á uppeldisstefnunni Uppeldi til ábyrgðar er æskileg

*Fáist ekki kennari með leyfisbréf til kennslu þrátt fyrir endurtekna auglýsingu kemur til greina að ráða háskólamenntaðan einstakling tímabundið til starfa sbr. lög nr. 95/2019

Auglýsing birt16. desember 2024
Umsóknarfrestur30. desember 2024
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Skólabraut 154520, 675 Raufarhöfn
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar