

Aðstoðarkona óskast fyrir unglingsstúlku - hlutastarf
Hress og skemmtileg stúlka á unglingsaldri óskar eftir ábyrgri og umhyggjusamri aðstoðarkonu til að aðstoða sig við flestar athafnir daglegs lífs og þátttöku í frístundum. Unnið er eftir hugmyndafræði um sjálfstætt líf og fer þjónustan að mestu leyti fram á heimili stúlkunnar sem staðsett er í Reykjavík.
Vinnutími
Óskað er eftir aðstoðarkonu sem gæti sótt stúlkuna í skólann á mánudögum og miðvikudögum kl. 12:30 og verið með henni til kl. 16:30.
Hæfniskröfur
Reynsla af starfi með fötluðum börnum og ungmennum
Reynsla af starfi með fólki með flogaveiki
Menntun sem nýtist í starfi, til dæmis í sálfræði, þroskaþjálfun, félagsliða, menntavísindum eða heilbrigðisvísindum
Góð hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, þolinmæði, sveigjanleiki og stundvísi
Gilt ökuskírteini og hreint sakavottorð
Hafa bíl til umráða
Reykleysi
Góð íslenskukunnátta
Aðeins 20 ára og eldri koma til greina
Annað:
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf fljótlega
Starfið hentar vel með námi eða annarri vinnu
Umsóknir skulu innihalda ferilskrá og upplýsingar um meðmælendur












