

Verslunarstjóri - BYKO Suðurnesjum
BYKO hefur haft starfsemi á Suðurnesjum frá árinu 1996 en opnaði núna í september nýja og glæsilega verslun að Fitjabraut. Ný og stærri verslun er liður í því að þjónusta heimili og atvinnulífið á Suðurnesjum enn betur.
Við leitum að leiðtoga til að leiða okkar frábæra hóp sem vinnur í nýju verslun okkar á Suðurnesjum.
Ef þú býrð yfir miklum leiðtogahæfileikum ert framsækinn, sinnir hlutum af fagmennsku og hefur gleðina í fyrirrúmi, þá erum við að leita að þér.
Starf verslunarstjóra er ábyrgðarmikið, skemmtilegt og fjölbreytt.
Við leitum að einstaklingi með:
- Stjórnunarreynslu og leiðtogahæfni
- Reynslu af sölu- og þjónustustörfum
- Ríka þjónustulund
- Mjög góða samskiptahæfni
- Menntun sem nýtist í starfi
- Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vera sýnilegur leiðtogi og leiða daglega starfsemi verslunar
- Ábyrgð á rekstri og mannauði verslunar
- Samskipti við viðskiptavini og birgja
- Ábyrgð á vöruframsetningu og áfyllingu
- Ábyrgð á birgðahaldi í verslun
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum og á öllum aldri til að sækja um.
BYKO hefur sett sér þá framtíðarsýn að skapa bestu heildarupplifun viðskiptavinar í framkvæmdum og fegrun heimilisins. Í þeirri vinnu höfum við gildin okkar að leiðarljósi; fagmennska, framsækni og gleði
Nánari upplýsingar veitir Haraldur Bergsson, framkvæmdastjóri smásölusviðs, [email protected]
Icelandic
English










