

Verk- eða tæknifræðingur með áherslu á verkefnastjórnun
Langar þig að starfa á metnaðarfullum vinnustað við krefjandi og fjölbreytt verkefni?
Stéttafélagið er ört stækkandi og framsækið verktakafyrirtæki. Fyrirtækið starfar á sviði jarðvinnu, veitulagna, mannvirkjagerðar og lóðafrágangs.
Félagið er mjög virkt á útboðsmarkaði. Meðal verkefna eru gerð viðbygginga við skólamannvirki, endurbætur fasteigna sveitarfélaga, nýbyggingar á eigin vegum, veituverkefni fyrir ýmsar veitustofnanir, gatnagerð og lóðaframkvæmdir.
Fyrirtækið starfar á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni. Vegna góðrar verkefnastöðu viljum við fjölga í hópi sérfræðinga í tæknideild fyrirtækisins. Um er að ræða fjölbreytt starf með áherslu á verkefnastjórnun. Staðan er partur af stjórnendateymi félagsins.
Verkefnin eru fjölbreytt, s.s. gerð og eftirfylgni verkáætlana, GPS mælingar með Trimble GNSS rover, magnútreikningar, aðstoð við tilboðsgerð og uppgjör, ofl..
Við bjóðum upp á gott og sveigjanlegt starfsumhverfi. Auðvelt er að þróast í starfi hjá ört vaxandi fyrirtæki.
- Verkefnastjórnun.
- Gerð verkáætlana og eftirfylgni.
- Innkaup og birgðahald.
- Samskipti við verkkaupa.
- Verkbókhald.
- GPS mælingar og útsetningar.
- Tæknileg úrvinnsla gagna, og yfirferð teikninga.
- Tilboðsgerð og uppgjör verka.
- Framlög að stöðugum umbótum í gæðum, öryggis‑ og umhverfismálum (ISO 9001/14001/45001).
- Háskólamenntun á sviði tækni- eða verkfræði.
- Gráða í verkefnastjórnun á háskólastigi, eða mikil reynsla af verkefnastjórnun.
- Reynsla af GPS mælingum er kostur, en ekki skilyrði.
- Reynsla af CAD hugbúnaði er kostur.
- Góð færni á excel til gagnavinnslu er kostur.
English
Icelandic










