Velferðarsvið – Þjónustukjarni Suðurgötu
Starfsfólk óskast í sumarafleysingar á heimili fatlaðs fólks í þjónustukjarna Suðurgötu í Reykjanesbæ. Um er að ræða 4 tímabundin 80-90% vaktavinnustörf þar sem unnið er á dag-, kvöld-, helgar- og næturvöktum.
Þjónustukjarni Suðurgötu er sólarhringsþjónusta fyrir fatlað fólk. Þar búa tíu íbúar með ólíkar stuðningsþarfir.
Unnið er eftir hugmyndafræði þjónandi leiðsagnar.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
• Einstaklingsmiðuð persónuleg þjónusta
• Aðstoð við heimilishald
• Aðstoð við persónulegt hreinlæti
• Stuðningur við samfélagsþátttöku íbúa bæði innan og utan heimilis
• Önnur tilfallandi störf
• Reynsla af störfum með fötluðu fólki er kostur
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Jákvæðni, sveigjanleiki og þjónustulund
• Góð Íslenskukunnátta
• Hreint sakarvottorð
• Bókasafnskort
• Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
• Gjaldfrjáls aðgangur í sund
• Gjaldfrjáls aðgangur í strætó