Forstöðumaður stuðningsþjónustu barna í Mosfellsbæ
Mosfellsbær óskar eftir að ráða öflugan, framsýnan og lausnamiðaðan einstakling til að leiða þróun og innleiðingu frekari breytinga á stuðningsþjónustu barna í sveitarfélaginu í takt við aðgerðaráætlunina Börnin okkar. Viðkomandi mun einnig veita skammtímadvöl fyrir fötluð börn og ungmenni og frístundaklúbbnum Úlfinum forstöðu.
Um er að ræða nýtt, spennandi og krefjandi starf þar sem þjónusta er veitt til barna á grundvelli laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir sem og laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.
Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri, starfsmannahaldi, innra skipulagi, áætlanagerð og faglegu starfi í samstarfi við faglegt teymi staðanna.
Forstöðumaður verður hluti af öflugu teymi forstöðumanna á velferðarsviði. Um er að ræða umfangsmikið og áhugavert starf í skemmtilegu starfsumhverfi.
Ráðið er í starfið frá 1. apríl.
Mosfellsbær er öflugt og eftirsótt sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsfólks í daglegu starfi.
- Fagleg forysta í málefnum barna sem undir starfið heyrir
- Byggja upp og viðhalda öflugu teymi fagfólks
- Utanumhald um rekstur og starfsmannamál sem og utanaðkomandi þjónustu
- Skipulagning á faglegu starfi í samstarfi við fagteymi
- Stýring á innra starfi og ábyrgð á veittri þjónustu
- Samskipti við lykilaðila, s.s. notendur, aðstandendur, samstarfsaðila innan og utan Mosfellsbæjar sem og aðra hagaðila
- Háskólapróf sem nýtist í starfi, framhaldsgráða skilyrði
- Haldbær reynsla af stjórnun og starfsmannahaldi
- Framúrskarandi skipulags- og leiðtogahæfileikar
- Haldgóð reynsla af starfi með börnum
- Reynsla af breytingastjórnun er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu er kostur
- Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
- Mikil hæfni í samskiptum
- Mjög góð íslenskukunnátta